28. maí 2025 kl. 16:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Örvar Jóhannsson (ÖJ) forseti
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) 1. varabæjarfulltrúi
- Dagný Kristinsdóttir (DK) 2. varaforseti
- Valdimar Birgisson (VBi) 1. varabæjarfulltrúi
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) aðalmaður
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) aðalmaður
- Erla Edvardsdóttir (EE) 1. varabæjarfulltrúi
- Hjörtur Örn Arnarson (HÖA) 1. varabæjarfulltrúi
- Helga Jóhannesdóttir (HJó) aðalmaður
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir skrifstofa umbóta og þróunar
Fundargerð ritaði
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir upplýsinga- og skjalastjóri
Í upphafi fundar var samþykkt með 10 atkvæðum að taka nýtt mál á dagskrá fundarins "Ósk um lausn frá setu sem varafulltrúi í bæjarstjórn og setu í nefndum" beiðni varafulltrúa um lausn frá störfum. Málið verður dagskrárliður nr. 7. Erla Edvardsdóttir tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Dagskrá fundar
Fundargerð
1. Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1668202505018F
Fundargerð 1668. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 873. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
1.1. Áhættugreining á fjárfestingu og rekstri Mosfellsbæjar 202406020
Niðurstaða áhættugreiningar KPMG á fjárfestingum og rekstri Mosfellsbæjar lögð fram.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.2. Mosfellsbær barnvænt sveitarfélag 2020081051
Kynning á aðgerðaáætlun stýrihóps um barnvænt sveitarfélag.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.3. Umhverfis- og loftslagsstefna fyrir Mosfellsbæ 202301124
Drög að umhverfis- og loftslagsstefnu Mosfellsbæjar lögð fram til samþykktar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.4. Úugata 1 - Þroskahjálp 202505285
Erindi Þroskahjálpar þar sem óskað er eftir 4% viðbótarstofnframlagi frá Mosfellsbæ vegna byggingar búsetukjarna að Úugötu 1 um leið og þess er óskað að umrædd lóð verði minnkuð.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.5. Grenndarstöðvar í Mosfellsbæ 202302133
Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að setja niður tvær grenndarstöðvar, við Skálatún og Vefarastræti.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.6. Ráðning skólastjóra Kvíslarskóla 202503432
Tillaga um ráðningu skólastjóra Kvíslarskóla.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.7. Sumarstörf 2025 202505488
Kynning á fyrirkomulagi og stöðu Vinnuskólans sumarið 2025.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.8. Beiðni knattspyrnudeildar UMFA um notkun á Brúarlandi 202504050
Beiðni knattspyrnudeildar UMFA um notkun á Brúarlandi tekin fyrir. Málinu vísað til bæjarráðs frá velferðarnefnd til umfjöllunar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.9. Tjaldhóll, Hraðarstaðir 6 - umsóknarbeiðni vegna rekstrarleyfis 202407259
Frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu umsagnarbeiðni vegna umsóknar Tjaldhóls ehf. um rekstrarleyfi fyrir rekstur gististaða í flokki II - C Minna gistiheimili.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.10. Sameiginleg vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu 202002266
Uppfærð fjárhagsáætlun samráðshóps um vatnsvernd og vatnsnýtingu árið 2025.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.11. Framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026 202504486
Erindi frá Innviðaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á breytingum á starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga árin 2025-2026.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.12. Ársfundur Náttúruhamfaratrygginga Íslands 2025 202504236
Boð á ársfund Náttúruhamfaratrygginga Íslands 22. maí nk.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.13. Skógar og lýðheilsa 202504422
Ályktun frá Skógfræðingafélagi Íslands.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
1.14. Opið bréf til sveitarstjórna um skaðsemi vindorkuvera á Íslandi 202504522
Opið bréf til sveitarstjórna um skaðsemi vindorkuvera á Íslandi.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2. Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1669202505029F
Fundargerð 1669. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 873. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
2.1. 5. áfangi Helgafellshverfis - úthlutun lóða Úugötu 202212063
Tillaga um viðbótarúthlutun lóða við Úugötu (síðari hluti 5. áfanga) í samræmi við framkomin tilboð.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.2. Útboð á rekstri götulýsingar 202503211
Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboðinu, Mosfellsbær - Gatna- og stígalýsing - Viðhald og þjónusta - MOS202503211
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1668. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.3. Útboð vegna ræstiþjónustu 202505480
Tillaga um að heimila fjármála- og áhættustýringarsviði að semja um gerð útboðsgagna vegna aðkeyptrar ræstiþjónustu.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.4. Leikskólinn Hlaðhamrar - Endurbætur 202403189
Minnisblað um framtíð leiksskóla á Hlaðhömrum og ástand eldri leikskólabygginga.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.5. Reykholt - gatnagerðar- og byggingargjöld 202503224
Beiðni um niðurfellingu álagðra gatnagerðargjalda.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.6. Fyrirspurn EFS varðandi fjárhagsleg áhrif kjarasamninga 202504225
Fyrirspurn frá Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga varðandi áhrif kjarasamninga.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.7. Frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og breytingar á sveitarstjórnarlögum 202505574
Innviðaráðuneytið bendir á áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála sem hafa verið kynnt í samráðsgátt. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga). Umsagnarfrestur er til 9. júní nk.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.8. Frumvarp til laga um veiðar á fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða 202505552
Frá atvinnuveganefnd Alþingis frumvarp til laga um veiðar á fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða. Umsagnarfrestur er til 28. maí nk.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.9. Beiðni Sorpu bs. um afgreiðslu á endurfjármögnun láns 2025011303
Beiðni Sorpu bs. um að Mosfellsbær gangist undir einfalda ábyrgð, og samþykki veðsetningu í tekjum, til tryggingar lánssamningi Sorpu bs. við Lánasjóð sveitarfélaga sem og að bærinn gangist undir aðrar skuldbindingar sem kveðið er á um í lánsamningnum.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
2.10. Beiðni Sorpu bs. um samþykki fyrir lántöku vegna uppbyggingar við Lambhagaveg 202505663
Beiðni Sorpu bs. um að Mosfellsbær gangist undir einfalda ábyrgð, og samþykki veðsetningu í tekjum, til tryggingar lánssamningi Sorpu bs. við Lánasjóð sveitarfélaga sem og að bærinn gangist undir aðrar skuldbindingar sem kveðið er á um í lánsamningnum.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1669. fundar bæjarráðs staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
3. Fræðslunefnd Mosfellsbæjar - 443202505015F
Fundargerð 443. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 873. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
3.1. Klörusjóður 2025 202502238
Umsóknir um styrki úr Klörusjóði teknar til umfjöllunar og afgreiðslu.
Alls bárust 14 umsóknir um styrki úr Klörusjóði að þessu sinni.
Eftirfarandi umsóknir bárust:
Að plægja akurinn - Jóga og núvitund fyrir vellíðan og vöxt barna í leik - Leirvogstunguskóli
Agastefna Höfðabergs - Höfðaberg
Félagsfærni í fókus - Varmárskóli
Fjölbreytt afþreying í útiveru og útinámi - Helgafellsskóli
Hugsandi kennslurými - Kvíslarskóli
Hvörfin í Hegranesi - Kvíslarskóli
Leikum af fingrum fram - Börnin okkar og útiveran, leikskólalóðin og leiksvæðið - Leirvogstunguskóli
Litlir vísindamenn - Höfðaberg
Solihull innleiðing - geðrækt í samreknum leik- og grunnskóla
Sterkari saman - sterk miðja - Lágafellsskóli
Tónlistarsmiðjur Listaskóla Mosfellsbæjar í leikskólum Mosfellsbæjar - Listaskóli Mosfellsbæjar
Upp - ferðalag til vaxtar - Helgafellsskóli
Upplýsinga- og tæknimennt í námsveri Lágafellsskóla með áherslu á forritun og sköpun - Lágafellsskóli
Útinám í Helgafellsskóla - HelgafellsskóliNiðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 443. fundar fræðslunefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
4. Velferðarnefnd Mosfellsbæjar - 30202505025F
Fundargerð 30. fundar velferðarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 873. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
4.1. Ársreikningur 2024 202505432
Ársreikningur 2024 lagður fyrir til kynningar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 30. fundar velferðarnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
4.2. Ársskýrsla Mosfellsbæjar 2024 202504472
Ársskýrsla 2024 lögð fyrir og kynnt.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 30. fundar velferðarnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
4.3. Samhæfð svæðisskipan í málefnum barna 202409078
Kynning á fyrirhugðu farsældarráði og stofnun þess. Verkefnastjóri farsældarráðs mætir á fundinn.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 30. fundar velferðarnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
4.4. Kynning á starfi félagsins 202505587
Formaður Afstöðu kynnir starf félagsins.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 30. fundar velferðarnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
4.5. Trúnaðarmálafundur 2022-2026 - 1772 202505021F
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 30. fundar velferðarnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5. Menningar- og lýðræðisnefnd - 29202505022F
Fundargerð 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar lögð fram til afgreiðslu á 873. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
***
Fundarhlé hefst kl. 16:53. Fundur hófst aftur kl. 16.57.***
5.1. Krakka Mosó 2025 202410207
Niðurstöður úr kosningu Krakka Mosó 2025 sem fram fer 20. maí 2025 kynntar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5.2. Ársskýrsla Mosfellsbæjar 2024 202504472
Ársskýrsla Mosfellsbæjar 2024 lögð fyrir og kynnt.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5.3. Listasalur Mosfellsbæjar. Sýningar 2026 202505609
Lögð fram tillaga að sýningum í Listasal Mosfellsbæjar árið 2026. Maddý Hauth sýningarstjóri Listasalarins kynnir tillöguna.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5.4. Hlégarður. Rekstur hússins og framtíðarsýn 202301450
Mat á tilraunaverkefni um rekstur Hlégarðs og tillaga um framtíðar fyrirkomulag á starfsemi Hlégarðs.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5.5. 17. júní 2026 202505610
Lagt fram minnisblað um hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2025, drög að dagskrá.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5.6. Í túninu heima 2025 202505612
Lagt fram umræðuskjal um mögulegar breytingar á uppbyggingu dagskrár í Túninu heima. Tilefnið er bókun bæjarráðs þar sem segir: „Í ljósi reynslunnar í ár (2024) og þróunar bæjarhátíðarinnar Í túninu heima frá árinu 2022 felur bæjarráð bæjarstjóra í samvinnu við menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviði og menningar- og lýðræðisnefnd að meta hvort og þá hvaða breytinga sé þörf við uppbyggingu dagskrár bæjarhátíðarinnar þannig að hún styðji við markmið Mosfellsbæjar um að hátíðin sé vettvangur menningar, hreyfingar og þátttöku íbúa í öruggu umhverfi"
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
5.7. Ósk um fyrirframgreiðslu styrks 202502244
Lögð fram ósk aðstandenda tónlistarhátíðarinnar Barnadjass í Mosó um fyrirframgreiðslu styrks sem hátíðin hlaut úr Lista- og menningarsjóði.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 29. fundar menningar- og lýðræðisnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6. Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 631202505026F
Fundargerð 631. fundar skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu á 631. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
6.1. Seljadalsnáma - umhverfismat efnistöku 201703003
Lagt er fram til kynningar álit Skipulagsstofnunar, dags. 08.05.2025, um umhverfismat framkvæmd vegna áframhaldandi efnistöku úr Seljadalsnámu í Mosfellsbæ. Í umhverfismatsskýrslu sveitarfélagsins voru kynnt áform um áframhaldandi efnistöku á tæplega 2 ha svæði og að heildarefnistökumagn yrði allt að 230.000 m³. Skipulagsstofnun telur að umhverfismatsskýrslan uppfylli skilyrði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.2. Hjarðarland 1 - fyrirspurn um breytta notkun húss 202503412
Borist hefur erindi frá Kristjáni Bjarnasyni, f.h. húseiganda, dags. 17.03.2025, með ósk um breytta notkun húss og uppskiptingu eignar að Hjarðarlandi 1, í samræmi við gögn. Breyta á einbýli í tvíbýli með aðgreiningu íbúðar í kjallara. Erindið er tekið til umsagnar skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag sem uppfyllir ákvæði skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.3. Miðdalsland I H L226498 - erindi um uppskiptingu lands og stofnun lóðar 202504479
Borist hefur erindi frá Sæunni Þorsteinsdóttur, f.h. Margrétar Tryggvadóttur landeigenda, dags. 28.04.2025, með ósk um uppskiptingu lands L226498 og stofnun 1 ha lóðar.
Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.4. Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 - Stakar byggingar á opnum svæðum í Hólmsheiði og austanverðum Úlfarsárdal 202407189
Lögð er fram til kynningar breytingartillaga á vinnslustigi fyrir aðalskipulag Reykjavíkur vegna breytinga á heimildum um byggingu stakra húsa á opnum svæðum, einkum á svæðum OP15 í Hólmsheiði og OP28 í innanverðum Úlfarsárdal. Samkvæmt gögnum eru breytingar ekki taldar umfangsmiklar og takmarkast fyrst og fremst við núverandi landskika innan umræddra svæða og eru í einkaeigu. Þær fela í sér að skerpt er á núverandi heimildum og réttindum lóðarhafa og húseigenda. Á svæði OP15 í Hólmsheiði, sem eru utan þéttbýlismarka Reykjavíkur og er hluti Græna trefilsins, er megin landnotkun til framtíðar útivist, frístundaiðja og skógrækt. Athugasemdafrestur vinnslutillögu var til og með 22.05.2025.
Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar. Hjálögð er til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar, dags. 20.05.2025, sem skilað var inn í Skipulagsgáttina fyrir hönd sveitarfélagsins.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.5. Miðdalur land L213970 - deiliskipulagsbreyting 202502474
Skipulagsfulltrúi samþykkti á 89. afgreiðslufundi sínum að deiliskipulagsbreytingfyrir frístundabyggð að L213970 Miðdalur land við Selmerkurveg yrði auglýst og kynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var kynnt á vef Mosfellsbæjar www.mos.is, Skipulagsgáttinni og Mosfellingi auk þess sem kynningarbréf voru send á þinglýsta eigendur aðliggjandi eigna og landa L226501, L125205, L123713, L125359, L237989, L237994, L125361, L237467, L237468 og L237471. Athugasemdafrestur var frá 11.04.2025 til og með 12.05.2025.
Umsagnir bárust frá Veitum ohf., dags. 23.04.2025 og Minjastofnun Íslands dag. 28.04.2025.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.6. Helgadalsvegur 60 - deiliskipulagsbreyting 202306155
Lögð er fram til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa í samræmi við afgreiðslu á 629. fundi nefndarinnar. Hjálagt er erindi málsaðila og tillaga að deiliskipulagsbreytingu til afgreiðslu.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.7. L228084 Í Miðlandslandi II óbyggt svæði - deiliskipulag 202503005
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu tillaga K.J. Ark, f.h. landeigenda, að nýju deiliskipulagi frístundabyggðar á skilgreindu óbyggðu svæði austan Silungatjarnar. Tillaga felur í sér uppbyggingu aðalhúss, bílgeymslu og gestahús allt að 380 m2 á um 12.225 m2 landi.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.8. Úugata 1 og 2-4 - merkjalýsing, lóða- og landamál 202502333
Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu breytt mæli- og lóðarblöð fyrir Úugata 1 og 2-4, til samræmis umræður og afgreiðslur breytta stærð Úugötu 2-4 á 617. fundi skipulagsnefndar og samþykkt á 1668. bæjarráðs Mosfellsbæjar vegna breytinga lóðar að Úugötu 1. Breyting hefur áhrif á umræddar lóðir og aðliggjandi bæjarland.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.9. Skálafell - Kýrhólsflói og Stóri-Bugðuflói - Deiliskipulag í Reykjavík 202505500
Lögð er fram til kynningar skipulags- og verklýsing fyrir nýtt deiliskipulag að Skálafelli. Samkvæmt kynningargögnum er um að ræða nýtt deiliskipulag vegna uppbyggingar á landi Kýrhólsflóa og Stóra-Bugðuflóa í Skálafelli þar sem ráðgert er að reisa þrjú hótel með heilsulind, líkamsræktaraðstöðu, veitingastöðum, ráðstefnusölum, sýningarrými, villum o.fl. Byggingar verða allt að þrjár hæðir, gistirými um 250 og starfsmannaíbúðir 200 talsins. Athugasemdafrestur vinnslutillögu var til og með 15.05.2025.
Hjálögð er til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar, dags. 14.05.2025, sem skilað var inn í Skipulagsgáttina fyrir hönd sveitarfélagsins.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.10. Efstaland 1 - ósk um aðal- og deiliskipulagsbreytingu 202408423
Lögð er fram til kynningu tillaga að aðal- og deiliskipulagsbreytingu fyrir Efstaland 1 á vinnslustigi. Hjálögð er samantekt og rýni innsendra umsagna skipulagslýsingar ásamt drögum að viðbrögðum.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.11. Stækkun og breytingar á Hlíðavelli - aðal- og deiliskipulag austurhluta 202408291
Edwin Roald, golfvallahönnuður, kynnir tillögu og hönnun vallar í nýju deiliskipulagi austurhluta Hlíðavallar á vinnslustigi. Hjálögð er samantekt og rýni innsendra umsagna skipulagslýsingar ásamt drögum að viðbrögðum.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.12. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 94 202505010F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.13. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 95 202505032F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
6.14. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 547 202505012F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 631. fundar skipulagsnefndar staðfest á 873. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
Almenn erindi
7. Ósk um lausn frá setu sem varafulltrúi í bæjarstjórn og setu í nefndum.202505838
Erindi Erlu Edvardsdóttur þar sem óskað er lausnar frá setu sem varafulltrúi í bæjarstjórn og setu í öðrum nefndum.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum að leysa Erlu Edvardsdóttur frá setu sem varafulltrúi í bæjarstjórn og setu í sem aðalfulltrúi í íþrótta- og tómstundanefnd og menningar- og lýðræðisnefnd frá og með 29. maí 2025, vegna flutnings úr sveitarfélaginu, sbr. 1. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga. Erla Edvarsdóttir varabæjarfulltrúi vék sæti við afgreiðslu málsins.
Fyrir hönd bæjarstjórnar þakkaði forseti Erlu fyrir störf hennar í þágu sveitarfélagsins.
Fundargerðir til kynningar
8. Fundargerð 407. fundar stjórnar Strætó bs.202505715
Fundargerð 407. fundar Strætó bs. lögð fram til kynningar. Send hefur verið fyrirspurn til Strætó með ósk um afhendingu fylgiskjala með fundargerð og verða þau sett inn þegar/ef þau berast.
Fundargerð 407. fundar Strætó bs. lögð fram til kynningar á 873. fundi bæjarstjórnar.
9. Fundargerð 52. eigendafundar Strætó bs.202505646
Fundargerð 52. eigendafundar Strætó bs. lögð fram til kynningar.
Fundargerð 52. eigendafundar Strætó bs. lögð fram til kynningar á 873. fundi bæjarstjórnar.
10. Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga202505652
Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar á 873. fundi bæjarstjórnar.
11. Fundargerð 607. fundar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu202505699
Fundargerð 607. fundar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu lögð fram til kynningar.
Fundargerð 607. fundar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu lögð fram til kynningar á 873. fundi bæjarstjórnar.