Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
  • Reykja­hverf­ið - gatna­gerð

    Mos­fells­bær ósk­ar eft­ir til­boð­um í gatna­gerð í Reykja­hverfi (Reykja­hvoll) í Mos­fells­bæ. Um er að ræða jarð­vinnu, hol­ræsa­lagn­ir, vatns- og hita­veitu­lagn­ir auk lagn­ingu strengja og ídrátt­ar­röra. Verklok 1.maí 2014

  • Verk­efn­is­lýs­ing fyr­ir nýtt svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins

    Verk­efn­is­lýs­ing fyr­ir nýtt svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

  • Fagna 50 ára af­mæli Skóla­hljóm­sveit­ar Mos­fells­bæj­ar

    Sunnu­dag­inn 3. nóv­em­ber efn­ir Skóla­hljóm­sveit­in til 50 ára af­mælis­tón­leik­anna. Tón­leik­arn­ir fara fram í Íþrótta­hús­inu að Varmá og hefjast kl. 14:00. Með hljóm­sveit­inni koma fram ein­söngv­ar­arn­ir Íris Hólm, María Ólafs­dótt­ir, Jó­hann­es Freyr Bald­urs­son og Þór­unn Lár­us­dótt­ir. Einn­ig taka þátt fé­lag­ar úr 11 af 12 kór­um Mos­fells­bæj­ar og verða því um 400 manns sem taka þátt í tón­leika­hald­inu. Í nýj­asta Mos­fell­ing er við­tal við Daða Þór Ein­ars­son stjórn­anda hljóm­sveit­ar­inn­ar og Birg­ir D Sveins­son stofn­anda hljóm­sveit­ar­inn­ar og stjórn­anda til 40 ára.

  • 7. KÁ í Varmár­skóla tek­ur þátt í verk­efn­inu „Kom­um heim­in­um í lag“

    Varmár­skóli er ann­ar tveggja skóla á land­inu sem í haust hafa tek­ið þátt í verk­efn­inu „Kom­um heim­in­um í lag“.

  • Fljúg­andi hund­ar í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar

    Laug­ar­dag­inn næst­kom­andi milli kl. 15 – 17 verð­ur opn­uð sýn­ing­in Fljúg­andi hund­ar í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar í Kjarna, Þver­holti 2.

  • Urð­un á Álfs­nesi verð­ur hætt inn­an 4-5 ára.

    Stjórn sam­taka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) hef­ur sam­þykkt eig­enda­sam­komulag um með­höndl­un úr­gangs og stefnt er að und­ir­rit­un þess á að­al­fundi sam­tak­anna föstu­dag­inn 25. októ­ber. Í sam­komu­lag­inu felst að reist verð­ur gas og jarð­gerð­ar­stöð í Álfs­nesi en jafn­framt verð­ur Gými lokað og urð­un sorps hætt.Sú fram­tíð­ar­sýn sem lögð er fram í eig­enda­sam­komu­lag­inu bygg­ist á því að auka sam­st­arf við önn­ur sorpsam­lög með það að mark­miði að Sorpa bs. hafi inn­an 3-5 ára að­g­ang að heild­ar­lausn með jarð- og gas­gerð­ar­stöð, urð­un, sem og brennslu­stöð.

  • Út­boð - Opið svæði við leik­skóla í Leir­vogstungu

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar, ósk­ar eft­ir til­boð­um í frá­g­ang á 8425 m2 opnu svæði við leik­skól­ann í Leir­vogstungu.

  • Sam­ráðs­fund­ur um upp­bygg­ingu íþrótta- og tóm­stunda­mann­virkja

    Laug­ar­dag­inn 26. októ­ber hélt íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar sam­ráðs­fund með­al íbúa og fé­laga­sam­taka í bæn­um.

  • Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar tók á móti þing­mönn­um í Hlé­garði

    Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar tók á móti þing­mönn­um kjör­dæm­is­ins í Hlé­garði á morg­un­verð­ar­fundi síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

  • Unn­ið að stór­bætt­um að­gangi að netteng­in­um

    Míla langt komin með upp­bygg­ingu á Ljósveitu – Veru­lega auk­inn gagna­flutn­ings­hrað­i­Ljósnet­ið. Um þess­ar mund­ir er unn­ið mark­visst að bætt­um netteng­ing­um í Mos­fells­bæ. Þess vegna er jarðrask víða um bæ og starfs­menn að leggja lagn­ir í jörðu. Míla er langt komin með upp­bygg­ingu á Ljósveitu. Á vor­mán­uð­um gerði Míla ehf. og Mos­fells­bær með sér sam­komulag um upp­bygg­ingu á opnu að­gangsneti, Ljósveitu, í bæj­ar­fé­lag­inu. Vinna er nú þeg­ar hafin í Töng­um og Holt­um, en auk þess er á áætlun að tengja Lönd­in, Ása­hverf­ið og Skála­túns­hverf­ið á þessu ári. Á fyrri hluta næsta árs er síð­an áætlað að tengja Reykja­hverf­ið.

  • Opið hús Skóla­skrif­stofu - Reiða barn­ið og skap­vondi ung­ling­ur­inn

    Mið­viku­dag­inn 30. októ­ber klukk­an 20 verð­ur fyrsta opna hús vetr­ar­ins hjá Skóla­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar. Í vet­ur verð­ur lögð áhersla á hag­nýt ráð til for­eldra og ann­arra varð­andi upp­eldi og sam­skipti við börn og ung­linga. Á þessu fyrsta kvöldi mun Jó­hanna Dag­bjarts­dótt­ir, sál­fræð­ing­ur við Skóla­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar, fjalla um reiði og skap­vonsku.

  • Sam­ráðs­fund­ur um upp­bygg­ingu mann­virkja

    Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar boð­ar til sam­ráðs­fund­ar laug­ar­dag­inn 26. októ­ber kl. 9 – 12 í Krika­skóla. Markmið fund­ar­ins er for­gangs­röðun upp­bygg­inga mann­virkja fyr­ir íþrótta og tóm­stund­a­starf­semi í Mos­fells­bæ. Í ný­út­gef­inni íþrótta- og tóm­stunda­stefnu Mos­fells­bæj­ar seg­ir eft­ir­far­andi: „For­gangs­röðun upp­bygg­ing­ar mann­virkja verði unn­in í sam­ráði við íbúa, hags­mun­að­ila og íþrótta- og tóm­stunda­fé­lög bæj­ar­ins.“ Kom­ið verði á fót „sam­ráðsvett­vangi þar sem leit­ast verð­ur við að greina og leggja mat á þarf­ir íþrótta- og­tóm­stunda­fé­laga fyr­ir að­stöðu til að sinna hlut­verki sínu, til lengri og skemmri tíma.“

  • Opin hús Skóla­skrif­stofu vet­ur­inn 2013-2014

    Líkt og und­an­farin 10 ár verð­ur Skóla­skrif­stofa Mos­fells­bæj­ar með opin hús í vet­ur fyr­ir alla þá er koma að upp­eldi barna með ein­um eða öðr­um hætti. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvölds­ins og lýk­ur á spurn­ing­um og sam­ræð­um að því loknu. OPNU HÚS­IN eru hald­in í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar í Kjarna, síð­asta mið­viku­dags­kvöld í mán­uði kl. 20:00-21:00 nema ann­að sé aug­lýst sér­stak­lega.

  • Styrk­ir vegna náms­kostn­að­ar og verk­færa- og tækja­kaupa fatl­aðs fólks árið 2013

    Styrk­ir vegna náms­kostn­að­ar og verk­færa- og tækja­kaupa­Mos­fells­bær vek­ur at­hygli á rétti fatl­aðs fólks 18 ára og eldra með lög­heim­ili í bæn­um til að sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um mál­efni fatl­aðs fólks.

  • Nýtt skóla­hús­næði vígt í Mos­fells­bæ

  • Fjöl­skyldu­nefnd aug­lýs­ir eft­ir um­sókn­um

    Fjöl­skyldu­nefnd Mos­fells­bæj­ar aug­lýs­ir eft­ir um­sókn­um um styrki til verk­efna á sviði fjöl­skyldu­þjón­ustu í Mos­fells­bæ. Um­sókn­ir skulu berast Þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar Þver­holti 2, 2. hæð á þar til gerð­um eyðu­blöð­um í síð­asta lagi 30. nóv­em­ber nk. Eyðu­blöðin má nálg­ast í Þjón­ustu­ver­inu og á heima­síðu bæj­ar­fé­lags­ins www.mos.is ( Um­sókn um styrki til verk­efna á sviði fjöl­skyldu­þjón­ustu ) eða sækja .pdf (29kb) skjal hér­Um­sókn­ir sem berast eft­ir þann tíma hljóta að jafn­aði ekki af­greiðslu. Að­il­ar sem fengu styrk á síð­asta ári þurfa að skila inn grein­ar­gerð um ráð­stöf­un þes

  • Nýtt að­al­skipu­lag Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 stað­fest

    Nýtt að­al­skipu­lag stað­fest­Nýtt að­al­skipu­lag Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 var stað­fest af Skipu­lags­stofn­un 19. sept­em­ber 2013 og tók gildi með birt­ingu aug­lýs­ing­ar í Stjórn­ar­tíð­ind­um 3. októ­ber. Lauk þar með end­ur­skoð­un að­al­skipu­lags­ins sem unn­ið hafði ver­ið að allt frá ár­inu 2008. Nýja skipu­lag­ið leys­ir af hólmi skipu­lag sem sam­þykkt var árið 2003 og hafði gild­is­tím­ann 2002-2024.Með­al helstu ný­mæla í nýju skipu­lagi m.v. það eldra má nefna breytta stefnu­mörk­un varð­andi út­færslu Vest­ur­lands­veg­ar og gatna­móta við hann með til­liti til „sam­búð­ar veg­ar og byggð­ar,“ nán­ari skil­grein­ing­ar og skil­mála um hverf­is­vernd­ar­svæði, frí­stunda­byggð, stök sum­ar­hús og um bland­aða byggð í Mos­fells­dal, svo og skil­grein­ingu æv­in­týragarðs og nýtt svæði fyr­ir hest­hús og hestaí­þrótt­ir í landi Hrís­brú­ar.

  • Heilsu­efl­andi sam­fé­lag í Mos­fells­bæ

    Mos­fells­bær er orð­ið, fyrst sveit­ar­fé­laga á Ís­landi, heilsu­efl­andi sam­fé­lag. Það er vel við hæfi að bær­inn okk­ar sem er þekkt­ur fyr­ir öfl­ugt íþróttalíf og fal­lega nátt­úru taki þar með for­yst­una í þessu verk­efni. Mið­viku­dag­inn 2. októ­ber und­ir­rit­uðu Mos­fells­bær, Embætti land­lækn­is og heilsuklas­inn Heilsu­vin sam­starfs­samn­ing um Heilsu­efl­andi sam­fé­lag í Mos­fells­bæ. Samn­ing­ur­inn er gerð­ur í fram­haldi af sam­þykkt bæj­ar­stjórn­ar Mos­fells­bæj­ar sem ákvað á 25 ára kaup­stað­araf­mæli bæj­ar­ins að verða fyrsta Heilsu­efl­andi sam­fé­lag­ið með form­leg­um hætti í sam­starfi við Embætti land­lækn­is.

  • Tvær skipu­lagstil­lög­ur: Varmár­skóla­svæði og Tungu­veg­ur

    Til­laga að deili­skipu­lagi Varmár­skóla­svæð­is, og í tengsl­um við hana til­laga að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi Tungu­veg­ar við gatna­mót Skóla­braut­ar.

  • Hvað mun nýr leik­skóli heita?

    Í úti­búi frá leik­skól­an­um Huldu­bergi sem nú er ris­inn við Þrast­ar­höfða eru starf­rækt­ar tvær deild­ir sem taka á móti 35 börn­um.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00