Laugardaginn 26. október hélt íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar samráðsfund meðal íbúa og félagasamtaka í bænum.
Markmið fundarins var forgangsröðun uppbygginga mannvirkja fyrir íþrótta ogtómstundastarfsemi í Mosfellsbæ. Fjölmargir mættu á fundinn úr ýmsumáttum. Gylfi Dalmann ráðgjafi stjórnaði fundinum i í samstarfi við Halldór Hallldórsson sérfræðingi í forgangsröðun opinberra verkefna.
Halldór kynnti á fundinum hugmyndir sínar varðandi forgansröðun verkefna og Gylfi stjórnaði hugmyndavinnu. Á næstu vikum munu þeir sem á fundinn mættu útfæra enn frekar sínar hugmyndir og senda Halldóri til frekari úrvinnslu. Fundurinn á laugardaginn var aðeins fyrsta skrefið í samráðsferlinu og verður fróðlegt að sjá afrakstur vinnunnar sem verður kynnt þegar þar að kemur.