Styrkir vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupaMosfellsbær vekur athygli á rétti fatlaðs fólks 18 ára og eldra með lögheimili í bænum til að sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks.
Markmið styrkjanna er að auðvelda fötluðu fólki að verða sér úti umþekkingu og reynslu og auka möguleika sína til virkrar þátttöku ísamfélaginu.
Heimilt er að veita styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki ergreiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildisem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita styrk tilverkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi,enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfingsem miði að því að auðvelda fötluð fólki að skapa sér atvinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2013.
Tengt efni
Styrkir til verkefna á sviði velferðarmála fyrir árið 2024
Velferðarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði velferðarmála í Mosfellsbæ.
Umsókn um styrk til náms, verkfæra- og tækjakaupa 2023
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2023.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir
Þriðjudaginn 20. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.