Úthlutun lóða í Fossatungu og Kvíslatungu
Mánudaginn 7. maí kl. 15.00 er boðað til fundar á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Þverholti 2, þar sem dregið verður úr umsóknum um 31 lóð við Fossatungu og Kvíslartungu.
Ási lýkur störfum sem byggingarfulltrúi
Ásbjörn Þorvarðarson eða Ási eins og flestir Mosfellingar þekkja hann, lauk störfum sem byggingarfulltrúi Mosfellsbæjar þann 27. apríl.
Fjölskyldutímar í sumarfrí
Dagur jarðar - Plokk á Íslandi
Umhverfissvið Mosfellsbæjar hvetur fyrirtæki í bænum til þess að velja sér einn dag í vor til þess að taka til í sínu nærumhverfi.
Reglur um framkvæmdir í Mosfellsbæ
Mikil uppbygging á sér nú stað í Mosfellsbæ og því fylgja miklar framkvæmdir og rask af ýmsu tagi.
Framkvæmdum við Helgafellsskóla flýtt
Á fundi bæjarráðs þann 12. apríl sl. var samþykkt að heimila bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi við Yrki arkitekta ehf. og VSB Verkfræðistofu ehf. um fullnaðarhönnun 2.-4. áfanga Helgafellsskóla.
34 tillögur bárust í hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Mosfellsbæ
Mosfellsbær í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands efndi til samkeppni um hönnun á nýju aðkomutákni til að marka þrjár aðkomur að Mosfellsbæ og bárust alls 34 tillögur um aðkomutákn.
Upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar 26. maí 2018
Dómsmálaráðuneytið hefur opnað vefsvæðið á vef Stjórnarráðsins með upplýsingum um framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna 26. maí 2018.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin og stendur til kjördags, laugardaginn 26. maí 2018. Atkvæðagreiðslan fer fram hjá sýslumönnum um land allt á aðalskrifstofum eða útibúum þeirra.
Hestamenn bjóða heim 1. maí 2018
Opið hús á degi íslenska hestsins – Hestamannafélagið Hörður býður bæjarbúa velkomna á opið hús í reiðhöll félagsins að Varmárbökkum þriðjudaginn 1. maí kl. 15:00.
Opnun útboðs: Helgafellsskóli – Lóðarfrágangur
Þann 13. apríl 2018 voru tilboð opnuð í verkið: Helgafellsskóli – Lóðarfrágangur.
Listasalur Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum fyrir sýningarárið 2019
Listasalur Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um einka- og samsýningar fyrir sýningarárið 2019.
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ 12. apríl - 3. maí 2018
Mosfellsbær minnir á hreinsunarátak sem er dagana 12. apríl til 3. maí.
Vel heppnaður fundur umhverfisnefndar
Síðastliðið haust samþykkti umhverfisnefnd Mosfellsbæjar að hefja endurskoðun á umhverfisstefnu bæjarins með hliðsjón af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Neyðarstjórn fær talstöðvar
Fulltrúar aðgerðarstjórnar og Sökkviliðs höfuðborgarsvæðisins afhentu Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra og fulltrúum neyðarstjórnar Mosfellsbæjar tvær Tetra talstöðvar þriðjudaginn 13. mars.
Menningarvika leikskólabarna í Mosfellsbæ 13. - 23. apríl 2018
Árleg menningarvika leikskólabarna í Mosfellsbæ verður haldin 13. – 23. apríl næstkomandi á torginu í Kjarna.
Mosfellsbæ gert að greiða 20 milljónir
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Mosfellsbæ til þess að greiða Spennt ehf. 20.099.106 kr. Í dómnum kemur fram að Spennt eigi samtals kröfur að fjárhæð 51.978.424 krónur. Mosfellsbær eigi hins vegar gagnkröfur til skuldajafnaðar að fjárhæð 31.879.318 krónur og beri því að greiða 20.099.106 krónur vegna málsins.
Heilbrigðiseftirlitið fær styrk til rannsókna
Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis hefur hlotið styrk til grunnrannsókna á lífríki Selvatns, Silungatjarnar og Krókatjarnar. Það er umhverfis- og auðlindaráðuneytið sem úthlutar styrknum upp á 1 milljón króna.
Varmárskóli vann upplestrarkeppnina 2018
Í tilefni 20 ára afmælis Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ var keppnin haldin í Framhaldsskólanum.
Mosfellsbær tekur við flóttamönnum í fyrsta sinn
Mánudaginn 19. mars settust tíu flóttamenn að í Mosfellsbæ, hinsegin fólk frá Úganda sem hefur undanfarið dvalið í flóttamannabúðum í Kenía. Þetta er í fyrsta sinn sem Mosfellsbær tekur formlega á móti flóttafólki.