Í tilefni 20 ára afmælis Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ var keppnin haldin í Framhaldsskólanum.
Til leiks voru mættir 10 framúrskarandi og hæfileikaríkir upplesarar úr 7. bekkjum Lágafells- og Varmárskóla.
Upplesarar stóðu sig vel en í lokin stóðu þrír eftir sem sigurvegarar kvöldins. Tómas Berg Þórðarson í 7. HH Varmárskóla hreppti fyrsta sætið, annað sætið fór til Emmu Óskar Gunnarsdóttur 7. ÁPR Lágafellsskóla og þriðja sætið hlaut Guðrún Embla Finnsdóttir 7. ÁB Varmárskóla.