Árleg menningarvika leikskólabarna í Mosfellsbæ verður haldin 13. – 23. apríl næstkomandi á torginu í Kjarna.
Leikskólabörn Mosfellsbæjar hafa verið að vinna listaverk sem verða til sýnis á torginu þessa daga. Sýningin gefur innsýn í það frábæra og fjölbreytta starf sem unnið er í leikskólum bæjarins. Einnig verður boðið upp á söng leikskólabarna fyrir gesti og gangandi við undirleik Helga Einarssonar á eftirfarandi dögum kl: 14:00.
- Mánudagurinn 16. apríl, árgangur 2014
- Þriðjudagurinn 17. apríl, árgangur 2013
- Miðvikudagurinn 18. apríl, árgangur 2012
Öll velkomin!