Nýjar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks
Þann 1. janúar 2015 taka gildi nýjar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Sorphirða um hátíðarnar 2014
Sorphirða almenns sorps um hátíðarnar er 31. desember og 2. janúar og tæming bláu pappírstunnunnar er 27. og 29. desember.
Sandur í Þjónustumiðstöð
Hjá Þjónustumiðstöð ( áhaldahúsi ) bæjarins við Völuteig 15 geta íbúar fengið sand til að bera á plön og stéttir við heimahús. Aðgengi er opið að sandi við Þjónustumiðstöð og er bæjarbúum velkomið að taka sand sem til þarf (muna að taka með sér poka eða ílát).
Almennar og sérstakar húsaleigubætur fyrir árið 2015
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Tvær verkefnislýsingar: Deiliskipulag Þingvallavegar og aðalskipulagsbreyting Selholti v. víkingabæjar
Auglýstar eru til kynningar verkefnislýsingar skv. 30. og 40. gr. skipulagslaga fyrir ofangreind verkefni. Ábendingar eða athugasemdir berist þjónustuveri eða skipulagsfulltrúa fyrir lok janúar.
Laugabakki Mosfellsdal, tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Breytingar skv. tillögunni felast í því að landi Laugabakka, sem nú er óskipt, er skipt upp í þrjá hluta með nokkuð öðrum hætti en gildandi skipulag gerir ráð fyrir. Athugasemdafrestur er til 3. febrúar 2015.
Gleðilega hátíð 2014
Starfsfólk Mosfellsbæjar óskar Mosfellingum sem og öðrum viðskiptavinum sveitarfélagsins gleðilegra jóla og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.
Búist við vatnselg
“Búast má við talsverðu leysingavatni á laugardag og gæti orðið launhált enda bráðnar auðveldlega nýfallinn snjór þegar hlánar” segir þeir hjá Veðurvaktinni um skil sem fara yfir landið á morgun. Gera má ráð fyrir að vatnselgur geti orðið nokkur á götum bæjarinns.
Snjómokstur í fullum gangi
Enn á ný hefur snjóað talsvert í bænum og starfsmenn bæjarins eru í óða önn að moka götur og stíga eftir snjómokstursáætlun.
Öll moksturstæki úti við snjóhreinsun
Allur mannskapur Þjónustustöðvar Mosfellsbæjar er úti að halda leiðum greiðum, bæði á umferðargötum sem á göngu- og hjólastígum.
Kaleo í Hlégarði
Hljómsveitin Kaleo heldur stórtónleika fyrir bæjarbúa í Hlégarði laugardaginn, 20. desember.
Foreldrar sæki börn sín í skólann í dag
Vegna óveðurs sem nú geisar á höfuðborgarsvæðinu hefur verklag um röskum á skólastarfi verið virkjað varðandi skólalok. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að tryggja að börn sín verði sótt í skólana að loknum skóladegi, þannig að þau séu ekki ein á ferðinni í óveðrinu. Jafnframt hafa skólar verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd með fullorðinna.
Kynning: Tillaga að nýju svæðisskipulagi - Höfuðborgarsvæðið 2040
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins auglýsir tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sem ætlað er að leysa af hólmi svæðisskipulag 2001-2024 og svæðisskipulag fyrir vatnsvernd frá 1998. Athugasemdafrestur er til 2. febrúar 2015.
Leikskólagjöld óbreytt og frístundaávísun hækkar
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2015 ásamt þriggja ára áætlun.
Íbúar í Akurholti athugið
Kaldavatnslaust verður í Akurholti miðvikudaginn 10. desember frá kl. 13:00 og fram eftir degi vegna viðgerða.
Kjör íþróttakonu og íþróttakarls Mosfellsbæjar 2014
Útnefning íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2014 fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá fimmtudaginn 22. janúar 2015 kl. 19:00. Þeir sem eru gjaldgengir sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi félaga í bænum eða er íbúi í Mosfellsbæ en stundar íþrótt sína utan Mosfellsbæjar, enda sé íþróttin ekki í boði innan bæjarins.
Aðventutónleikar í Mosfellskirkju 9. desember 2014
Diddú og drengirnir verða með sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju þriðjudaginn 9. desember kl. 20:00.
Bráðger börn
Föstudaginn 28. nóvember fór fram vinnustofa um bráðgera nemendur í grunnskólunum. Meðal þess sem fjallað var um var hvernig skilgreinum við bráðgera nemendur, hverjar eru þarfir þeirra og hvað þarf að gera til að mæta þörfum bráðgerra nemenda í skólastarfinu varðandi nám og vellíðan. Niðurstöður vinnustofunnar verða notaðar til frekari stefnumótunar og sem grunnur að fræðslu til kennara og skóla. Um 60 manns mættu og tóku þátt í vinnunni og margar hugmyndir og tillögur komu fram sem verða skoðaðar frekar og kynntar síðar í sveitarfélögunum innan SSH.
Foreldranámskeið - Ertu að verða foreldri? Næsta námskeið 21. janúar 2015
Fjölskyldu- og fræðslusvið hefur ákveðið að að styrkja foreldra í nýju hlutverki og bjóða styrk í eflandi foreldranámskeið sem auðveldar og undirbýr verðandi foreldra fyrir breytingar sem verða í parasambandinu við að eignast barn.
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 kynnt fyrir íbúum