Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
22. desember 2014

Aug­lýst­ar eru til kynn­ing­ar verk­efn­is­lýs­ing­ar skv. 30. og 40. gr. skipu­lagslaga fyr­ir of­an­greind verk­efni. Ábend­ing­ar eða at­huga­semd­ir ber­ist þjón­ustu­veri eða skipu­lags­full­trúa fyr­ir lok janú­ar.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar tvær verk­efn­is­lýs­ing­ar skv. 30. og 40. gr. skipu­lagslaga:

Fyr­ir gerð deili­skipu­lags fyr­ir Þing­valla­veg í Mos­fells­dal og næsta um­hverfi hans, frá stað skammt vest­an Suð­ur­ár­brú­ar og aust­ur fyr­ir Gljúfra­stein. Markmið með deili­skipu­lag­inu er að er að móta og ákveða gerð um­ferð­ar­mann­virkja og um­hverf­is þeirra með þeim hætti að stuðlað sé að auknu ör­yggi allra þátt­tak­enda í um­ferð­inni á svæð­inu og ásætt­an­legri sam­búð byggð­ar og veg­ar.

Fyr­ir breyt­ingu á að­al­skipu­lagi í landi Sel­holts í Mos­fells­dal, þ.e. að land­notk­un á um 15 ha reit sunn­an Leirtjarn­ar þar sem nú er land­bún­að­ar­svæði og opið óbyggt svæði breyt­ist í af­þrey­ing­ar- og ferða­manna­svæði. Fyr­ir ligg­ur vilja­yf­ir­lýs­ing Mos­fells­bæj­ar og fé­lags­ins Stór­sögu um leigu á landi í því skyni að þarna verði byggð­ur upp vík­inga­bær með fornu lagi, sem veiti ferða­mönn­um inn­sýn í að­stæð­ur og lifn­að­ar­hætti lands­manna á þjóð­veldisöld. Áform­að er að sam­hliða að­al­skipu­lags­breyt­ing­unni verði gerð til­laga að deili­skipu­lagi reits­ins.

Í verk­efn­is­lýs­ing­um kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um. Fyr­ir­hug­uð er sér­stök kynn­ing fyr­ir íbúa Mos­fells­dals á lýs­ingu fyr­ir Þing­valla­veg og verð­ur hún aug­lýst síð­ar.

At­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi lýs­ing­arn­ar má skila til þjón­ustu­vers­ins eða und­ir­rit­aðs og er æski­legt að þær ber­ist fyr­ir lok janú­ar 2015.

22. des­em­ber 2014,

Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

 

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00