Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Um­sókn­ir


Frístund fyr­ir 1. – 4. bekk

Grunn­skól­ar Mos­fells­bæj­ar starf­rækja frístund fyr­ir 1.-4. bekk. Frístund býð­ur upp á marg­vís­leg verk­efni, t.d. íþrótta-, tóm­stunda-, lista- og menn­ing­ar­verk­efni. Helstu áhersl­ur í starf­inu eru ör­yggi, úti­vist, hreyf­ing, fjöl­breytni, tóm­stund­ir, íþrótt­ir og vellíð­an.

Að öllu jöfnu er frístund opin dag­lega alla daga á starfs­tíma skóla en opn­un­ar­tím­inn tek­ur þó mið af því hvern­ig skól­inn flétt­ar starf­ið inn í við­veru barna í skól­an­um og get­ur því ver­ið breyti­leg­ur frá ári til árs.

Gjaldskrár:


Reikni­vél

Settu inn þínar forsendur
Hvað kostar að vera með
KostnaðarliðurKostnaður
Gjald per viku1.624 kr.
Gjald per mánuð (m.v. 4 vikur)6.496 kr.
Fyrirvari: Eingöngu er um áætlun að ræða miðað við þær forsendur sem slegnar eru inn.

Skóla­mötu­neyti

Í Mos­fells­bæ er lögð áhersla á að í skóla­mötu­neyt­um bæj­ar­ins njóti skóla­börn fjöl­breyttr­ar fæðu í hæfi­legu magni, að mat­vælin séu rík af nær­ing­ar­efn­um, fersk og að þau séu í háum gæða­flokki. Lögð er áhersla á að far­ið sé eft­ir ráð­legg­ing­um Lýð­heilsu­stöðv­ar hvað varð­ar fæðu­val, nær­ing­ar­gildi og skammta­stærð­ir.


Skóla­akst­ur


Trygg­ing­ar á skóla­tíma

Öll börn, sem eru búsett í Mosfellsbæ og eru skráð í grunnskóla (gildir um slys sem verða á skólatíma og í frístundaseljum, á skólalóð eða í ferð á vegum skólans), leikskóla, á sumarnámskeiðum ÍTOM og í skipulögðu tómstundastarfi félagsmiðstöðva eru sjálfkrafa vátryggð hjá TM tryggingum.

Nánari upplýsingar um tryggingavernd má fá í þjónustuveri TM í síma 515-2000.


Tengl­ar


Regl­ur og sam­þykkt­ir

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00