Verkfall leikskólakennara boðað á mánudag
Félag leikskólakennara (FL) hefur boðað til verkfalls sem hefjast mun mánudaginn 22. ágúst. Deiluaðila greinir á um framkvæmd verkfallsins en þar til það skýrist verður framkvæmdin í samræmi við leiðbeiningar FL.
Í túninu heima 2011 - Bæjarhátíð haldin í sjöunda sinn
Í túninu heima, bæjarhátíð Mosfellsbæjar, verður haldin í sjöunda sinn dagana 25. – 28. ágúst næstkomandi.
Öskudagurinn 2011 í Varmárskóla
Öskudagurinn í Varmárskóla var með skemmtilegu sniði nú eins og árin á undan.
Stærðfræðikeppni grunnskólanema
Nýverið var haldin stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur úr Grafarvogi, Árbæ, Norðlingaholti og Mosfellsbæ. Stærðfræðikennarar við Borgarholtsskóla stóðu fyrir keppninni. Verðlaunaafhending var á þriðjudag og hlutu sjö nemendur úr Varmárskóla verðlaun.
Vel heppnuð nemendaferð til Lettlands
Þann 26.mars sl. fóru tveir kennarar og sjö nemendur úr 10. HMH í Varmárskóla til Ventspils í Lettlandi til að taka þátt í verkefninu “Start with your self”.
TIL ÍBÚA Í ÁSA- OG HELGAFELLSHVERFI
Framkvæmdir við tvöföldun Vesturlandsvegar frá Álafosstorgi að Þingvallatorgi er nú langt á veg komnar. Um leið og vegurinn verður orðinn tvöfaldur er aðkoma um Ásland í núverandi mynd ekki möguleg. Stefnt er að lokun Áslands eigi síðar en 15. ágúst 2011.
Opnun Hugsteypunnar í Listasal Mosfellsbæjar
Föstudaginn 12. ágúst kl. 16 – 18 verður opnuð sýning myndlistartvíeykisins Hugsteypunnar, Tengslun, kóðun og kerfismyndun í Listasal Mosfellsbæjar. Á sýningunni gefur að líta þrjár sjálfstæðar innsetningar sem Hugsteypan hefur unnið að undanfarin tvö ár.
Hárspray í Bæjarleikhúsinu
Föstudaginn 5. ágúst síðastliðinn var söngleikurinn Hársprey frumsýndur í Bæjarleikhúsinu hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Að söngleiknum koma 37 ungmenni á aldrinum 13-18 ára sem öll sameina krafta sína í leik, söng, dansi og búningagerð. Söngleikurinn er afrakstur námskeiða..
Til hamingju með 24. ára afmælið, Mosfellingar!
Í dag eru 24 ár liðin frá því að Mosfellsbær var stofnaður og fá Mosfellingar hér með hamingjuóskir í tilefni dagsins.
Nýtt tjaldstæði Mosfellsbæjar
Við eldri deild Varmárskóla er búið að opna nýtt tjaldstæði fyrir ferðamenn í Mosfellsbæ. Á svæðinu er ágæt aðstaða fyrir tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.
Mosverjar á Alheimsmóti í Svíþjóð
Fimmtán Mosverjar eru núna staddir á Alheimsmóti skáta í Svíþjóð ásamt tæplega 300 öðrum Íslendingum.
Mozart og fjórar hendur á flyglinum á Gljúfrasteini
Sunnudaginn 24. júlí, kl. 16:00, munu Anna Guðný Guðmundsdóttir og Snorri Sigfús Birgisson leika fjórhent á píanó í stofunni á Gljúfrasteini.
Nýtt tjaldstæði Mosfellsbæjar
Við eldri deild Varmárskóla er búið að opna nýtt tjaldstæði fyrir ferðamenn í Mosfellsbæ. Á svæðinu er ágæt aðstaða fyrir tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Hægt er að komast í rafmagn og þar er vaskur og skjólaðstaða til að vaska upp, salernisaðstaða, bekkir þar sem ferðamenn
Átak í frágangi lóða á nýbyggingarsvæðum
Mosfellsbær hefur nú hrint af stað átaki í frágangi lóða á nýbyggingarsvæðum. Markmiðið er að girða fyrir hættur sem leynst geta á ófrágengnum lóðum og ókláruðum byggingum.
Framkvæmdir hafnar við Leirvogstunguskóla
Hafnar eru framkvæmdir við nýja leikskóladeild Leirvogstunguskóla sem staðsett verður við Laxatungu 70. Skólinn sem nú rís er um 340 m². Áætlað er að skólastarf hefjist þar 15. ágúst næstkomandi.
Gæsluvöllur Mosfellsbæjar við Njarðarholt opnar 4. júlí
Gæsluvöllur verður opinn í júlí eða frá 4. júlí til og með 29. júlí. Opnunartími vallarins er frá kl. 9.00 – 12.00 og frá kl. 13.00 – 16.00.Á gæsluvöllinn geta komið börn frá 20 mánaða – 6 ára aldurs.