Föstudaginn 12. ágúst kl. 16 – 18 verður opnuð sýning myndlistartvíeykisins Hugsteypunnar, Tengslun, kóðun og kerfismyndun í Listasal Mosfellsbæjar. Á sýningunni gefur að líta þrjár sjálfstæðar innsetningar sem Hugsteypan hefur unnið að undanfarin tvö ár.
Föstudaginn 12. ágúst kl. 16 – 18 verður opnuð sýning myndlistartvíeykisins Hugsteypunnar, Tengslun, kóðun og kerfismyndun í Listasal Mosfellsbæjar. Á sýningunni gefur að líta þrjár sjálfstæðar innsetningar sem Hugsteypan hefur unnið að undanfarin tvö ár. Vinnulag Hugsteypunnar ber keim af rannsóknarferli þar sem þættir eins og listasaga, sjónmenning, framsetning og túlkun verka eru settir undir smásjá. Verkin eru unnin út frá kerfum og greiningarferlum, bæði þekktum og heimatilbúnum.
Allir velkomnir – aðgangur ókeypis