Við eldri deild Varmárskóla er búið að opna nýtt tjaldstæði fyrir ferðamenn í Mosfellsbæ. Á svæðinu er ágæt aðstaða fyrir tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.
Við eldri deild Varmárskóla er búið að opna nýtt tjaldstæði fyrir ferðamenn í Mosfellsbæ. Á svæðinu er ágæt aðstaða fyrir tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Hægt er að komast í rafmagn og á svæðinu er vaskur og skjólaðstaða til að vaska upp, salernisaðstaða, bekkir þar sem ferðamenn geta notið fagurs útsýnis af svæðinu sem stendur frekar hátt. Upplýsingaskilti er á staðnum en nánari upplýsingar má nálgast Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Tjaldstæðið var tekið í notkun í byrjun júlí og var frítt fyrstu dagana í tengslum við Gogga galvaska mótið. Verð núna er kr. 500 á mann yfir nóttina og rafmagn í sólarhring einnig kr. 500.