Kjör íþróttakonu og íþróttakarls Mosfellsbæjar 2012
Útnefning íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2012 fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá fimmtudaginn24. janúar 2012 kl. 19:00. Þeir sem eru gjaldgengir sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi félaga í bænum eða vera íbúi í Mosfellsbæ sem stundar íþrótt sína utan Mosfellsbæjar, enda sé íþróttin ekki í boði innan bæjarins.
Nýr hjóla- og göngustígur tengir Mosfellsbæ og Reykjavík
Hjólafólk gladdist innilega í dag er nýr hjóla- og göngustígur milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur var formlega tekinn í notkun af borgarstjóra, bæjarstjóra Mosfellsbæjar og vegamálastjóra.
Jólatónleikar Skólakórs Varmárskóla.
Skólakór Varmárskóla verður með jólatónleika í sal Varmárskóla fimmtudaginn 13. desember klukkan 18:00. Um 90 kórfélagar á aldrinum 8 – 16 ára flytja fjölbreytt úrval jólalaga. Hátíðleg stund á aðventunni.
Guðrún Ólafsdóttir komin í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2
Guðrún Ólafsdóttir 15 ára nemandi við Tónlistardeild Listaskóla Mosfellsbæjar á nú lag sem komið er í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2.Hún leikur lagið ásamt hljómsveitinni White Signal og Gradualekór Langholtskirkju. Hljómsveitin White Signal hóf starfssemi sína í hornstofu tónlistarskólans sumarið 2011 og muna margir bæjarbúar eftir þessari hljómsveit sem æfði allan daginn þetta sumar.
3 deiliskipulagstillögur - endurauglýsing
Deiliskipulagsbreytingar varðandi Brúnás í Helgafellshverfi og Braut í Mosfellsdal, og deiliskipulag frístundalóðar vestur af Silungatjörn.
Í kvöld er frítt inn á leik Aftureldingar í N1 deild karla í handbolta
Afturelding tekur á móti Akureyri í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í kvöld, fimmtudaginn 13. desember, klukkan 18.00. Í tilefni af 25 ára afmæli bæjarins mun Mosfellsbær bjóða á leikinn. Mætum öll og styðjum okkar menn!
Jólatónleikar í Lágafellskirkju mánudaginn 17. desember.
Formleg opnun hjóla- og göngustígs milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur
Nýr hjóla- og göngustígur milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur verður opnaður formlega föstudaginn 14. desember kl. 12:14 við Skógræktina í Hamrahlíð.
Opnun sýningar - Pixlar í Listasal Mosfellsbæjar
Jólatónleikar Listaskóla Mosfellsbæjar
Hátíðlegir jólatónleikar verða haldnir eftirtalda daga í Lágafellskirkju 11. og 13. desember og í Listasal Mosfellsbæjar 17. og 18. desember. Tónleikarnir hefjast kl.17.00 og standa til kl 18.00.
Diddú og drengirnir – Tónleikar í Mosfellskirkju í kvöld
Sigrún Hjálmtýsdóttir og blásarasextett halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju. Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim að þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar opnar
Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar er opin í Hamrahlíð við Vesturlandsveg frá laugardeginum 8. desember til jóla. Opnunartími er frá 12:00-16:00 virka daga en 10:00-16:00 um helgar. Helgina 15. – 16. og 22. desember koma jólasveinar klukkan 11:30 í skóginn.
Tónleikar söngnemenda í Listaskóla Mosfellsbæjar
Tónleikar söngnemenda í Listaskóla Mosfellsbæjar, verða í Kaffihúsinu Álafossi fimmtudaginn 6. des. Ljúf jólalög ásamt öðrum lögum. Yndislegt að kaupa sér eins og einn kakóbolla og hlusta á framtíðar söngstjörnur úr Mosfellsbænum. Tónleikarnir hefjast kl 19 og standa í u.þ.b. 45 mín. Frítt inn.
Kynningarfundur um friðlýsingu Álafoss og Tungufoss
Mosfellsbær boðar til opins kynningarfundar um friðlýsingu fossa í Mosfellsbæ, þriðjudaginn 11. desember kl. 17 á Kaffihúsinu Álafossi. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 9. ágúst síðastliðinn að vinna að friðlýsingu fossa í Mosfellsbæ, þar á meðal Álafoss í Varmá og Tungufoss í Köldukvísl.
Gaman Saman á aðventunni.
Aðventan er tími til að njóta samveru. Saman hópurinn hefur gert dagatal með einföldum hugmyndum að samveru.
Málþing í Hlégarði um málefni eldra fólks
Fimmtudaginn 6.desember fer fram málþing í Hlégarði um tækifæri og framtíð eldra fólks á Íslandi undir yfirskriftinni „Í kör? – Nei takk!“ Málþingið er haldið af Samtökum félagsmálastjóra á Íslandi og fundarstjóri er Unnur V. Ingólfsdóttir félagsmálastjóri Mosfellsbæjar. Guðbjartur Hannesson Velferðarráðherra ávarpar fundinn en dagskráin er fjölbreytt og áhugaverð.
Íslandsmet í sundi
Karen Axelsdóttir setti íslandsmet í flokki S2 á Íslandsmóti ÍF í Ásvallalaug, laugardaginn 24. nóvember sl. Nýtt met hennar var 01:55,94 en fyrra met hennar var 2:00,08 en það var sett í mars á sl. ári. Þetta er frábær árangur hjá þessari 20 ára gömlu sundkonu úr Íþróttafélaginu Ösp og sýnir vel hvað hún tekur stórstígum framförum. Karen, sem er Mosfellingur, æfir bæði í Lágafellslaug og í Laugardalslauginni.
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árin 2013-2016 samþykkt
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt í bæjarstjórn í gær 21.nóvember. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðunnar sem nemur rúmlega 33 mkr. Megináherslur í fjárhagsáætlun 2013 eru hér eftir sem hingað til að standa vörð um þá grunn- og velferðarþjónustu sem veitt er af stofnunum bæjarins. Í fjárhagsáætluninni fyrir árið 2013 er verið að leggja meiri fjármuni í þjónustuna en nemur verðlagshækkunum sem vonandi verður til þess að bæta þjónustu við íbúa enn frekar.
Mosfellsbær lækkar lóðaverð og býður fjármögnun
Á blaðamannafundi í dag, fimmtudaginn 28.nóvember, kynnti Haraldur Sverrisson bæjarstjóri átak í sölu atvinnulóða í Mosfellsbæ. Á fundinum kynnti Teitur Gústafsson innkaupastjóri hjá Ístak einnig lóðir á Tungumelum sem Ístak hefur til sölu. Við þetta tilefni lýsti Teitur yfir ánægju starfsfólks Ístaks er með veru sína hérna í bænum en eins og flestum er kunnugt þá flutti Ístak höfuðstöðvar sínar í Mosfellsbæ fyrr á árinu.
Menningarstefna fullmótuð
Menningarmálanefnd hefur unnið að menningarstefnu Mosfellsbæjar allt frá árinu 2006 með hléum, en eftir mótun stefnu Mosfellsbæjar hófst stefnumótun málaflokka í samræmi við hana.