Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar opnar í Hamrahlíð við Vesturlandsveg frá laugardeginum 8. desember til jóla.
Opnunartími er frá kl. 12:00-16:00 virka daga en kl. 10:00-16:00 um helgar.
Helgina 15. – 16. og 22. desember koma jólasveinar kl. 11:30 í skóginn.
Hægt er að fara í skóginn og saga sjálf(ur) tré en einnig verða til söguð tré á staðnum.
Til sölu eru:
- lifandi tré í pottum
- höggvin tré í öllum stærðum
- útlitsgölluð tré (veggtré)
- gjafabréf
Tengt efni
Foreldrafundur í kvöld
Fræðslu og frístundavið Mosfellsbæjar stendur fyrir foreldrafundi í kvöld, þriðjudag 22. ágúst. Fundurinn hefst kl. 17:30 og er haldinn á Teams.
Fögnum fjölbreytileikanum - Regnbogagata máluð í Mosfellsbæ
Í dag, miðvikudaginn 9. ágúst, á 36 ára afmælisdegi Mosfellsbæjar, tóku bæjarstjóri og bæjarfulltrúar til hendinni og máluðu regnbogagötu fyrir framan félagsheimilið Hlégarð.
Sumarblómin prýða bæinn
Garðyrkjudeildin vinnur nú hörðum höndum að því að prýða bæinn okkar með sumarblómum.