Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
9. júní 2025

Þessi pist­ill kem­ur óvenju seint þar sem ég var í fríi um síð­ustu mán­að­ar­mót, á föstu­dag­inn 30 maí og mánu­dag 2. júní en 1. júní bar upp á sunnu­dag, sjó­mannadag­inn. Vinnu­vik­an var er­il­söm og það var ekki fyrr en í ró­leg­heit­un­um núna um hvíta­sunn­una að ég gaf mér tíma til að líta yfir verk­efni maí mán­að­ar.

Það má segja að maí 2025 hafi að mörgu leyti snú­ist um mál­efni barna og ung­linga í Mos­fells­bæ.

Í byrj­un mán­að­ar­ins hóf Berg­ið göngu sína í Mos­fells­bæ en það er ráð­gjafa­þjón­usta fyr­ir ung­menni og í boði eru end­ur­gjalds­laus við­töl hjá sér­fræð­ingi. Berg­ið verð­ur með opið á mánu­dög­um  í Mos­fells­bæ og fara við­tölin fram að Brú­ar­landi. Til þess að panta tíma er far­ið á vef Bergs­ins og ýtt á hnapp sem heit­ir ,,Óska eft­ir þjón­ustu” og þá fær við­kom­andi út­hlutað tíma. Í árs­skýrslu Bergs­ins frá ár­inu 2023 seg­ir um þjón­ust­una:

„Berg­ið er skil­greint sem lág­þrösk­ulda­þjón­usta. Lág­ur þrösk­uld­ur þýð­ir ann­ars veg­ar að að­gengi sé gott að þjón­ustu, að auð­velt sé að fá tíma, að auð­velt sé að nálg­ast þjón­ust­una bæði ra­f­rænt og í raun­heim­um, að hún sé ná­lægt ung­menn­inu og ókeyp­is. Hins veg­ar að þjón­ust­an miði að því að hvetja ungt fólk að koma, reyna að minnka stimplun og að ungt fólk upp­lifi að það „megi“ koma í Berg­ið Headspace, al­veg sama hvað. Því eru eng­ar höml­ur á því hver get­ur kom­ið, það þarf ekki grein­ingu, til­vís­un eða út­skýr­ingu. Þann­ig er ekki rætt um geð­sjúk­dóma eða skil­grein­ing­ar á því að ungt fólk komi og lögð áhersla á að ekk­ert sé og lít­ið eða of stórt. Eina sem þarf er vilj­inn til að leita að­stoð­ar. Sem hluti af því er hús­næði og hönn­un um­hverf­is að­lað­andi og já­kvætt og að­lag­að þess­um ald­urs­hóp.“

Í maí byrj­uð­um við líka með Opna for­eldralínu þar sem for­eldr­ar eða for­ráða­menn geta pantað milli­liða­laust sím­töl  til sál­fræð­inga og fé­lags­ráð­gjafa og rætt um hvað­eina sem teng­ist því að vera for­eldri ung­lings. Sím­tölin fara fram á fimmtu­dög­um og hafa síma­tím­arn­ir ver­ið mjög vin­sæl­ir.

Þá hóf­um við, fyrst allra sveit­ar­fé­laga að bjóða upp á opna sál­fræði­tíma fyr­ir nem­end­ur ung­linga­stigs í grunn­skól­un­um. Það eru sál­fræð­ing­arn­ir Helgi Þór Harð­ar­son og Dað­ey Al­berts­dótt­ir sem taka á móti nem­end­um einu sinni í viku, á þriðju­dög­um. Það þarf ekk­ert að panta tíma, bara koma við hjá þeim og ræða málin.

Þau Dað­ey og Helgi kynntu þessa nýj­ung í Bít­inu á Bylgj­unni og kynntu jafn­framt verk­efn­ið Börn­in okk­ar.

Þessa þjón­ustu­aukn­ingu má rekja til verk­efn­is­ins, Börn­in okk­ar en bæj­ar­stjórn ákvað að setja 100 millj­ón­ir auka­lega til að styrkja for­varn­ir og vinnu með börn­um og ung­ling­um á ár­inu 2025. Auk of­an­greindr­ar þjón­ustu hafa ver­ið hald­in nám­skeið fyr­ir for­eldra leik­skóla­barna, op­inn fræðslufund­ur með Önnu Stein­sen fyr­ir for­eldra, auk­inn opn­un­ar­tími í íþrótta­mann­virkj­um fyr­ir ung­linga, aukin við­vera í Ból­inu fyr­ir nem­end­ur á mið­stigi og sam­þykkt að hækka frí­stunda­styrk í haust. Þá hafa ver­ið hald­in nám­skeið með starfs­fólki íþrótta­mann­virkja og UMFA um sam­skipti við börn og ver­ið er að vinna að und­ir­bún­ingi að gerð sam­skipta­sátt­mála á milli heim­ila og skóla í öll­um skól­um bæj­ar­ins. Við héld­um ein­mitt op­inn vinnufund með for­eldr­um í Hlé­garði í sam­starfi við sam­tök for­eldra­fé­laga í Mos­fells­bæ þar sem  Vanda Sig­ur­geirs­dótt­ir frá KVAN kynnti að­ferð­ir við gerð sam­skipta­sátt­mála á milli heim­ila og skóla og stýrði vinnu­stofu. Við mun­um hafa frek­ari vinnufundi með for­eldr­um á haust­mán­uð­um.

Verk­efn­ið Börn­in okk­ar var ákveð­ið í ljósi þeirr­ar miklu fjölg­un­ar barna­vernd­ar­til­kynn­inga sem átti sér stað á ár­inu 2024 en mark­mið­ið er að ná til barna og ung­menna með for­vörn­um, auknu að­gengi að sér­fræð­ing­um og stuðn­ingi við starfs­fólk skóla og frí­stunda og for­eldra áður en vand­inn er orð­inn það mik­ill að mál­ið þarfn­ast að­komu barna­vernd­ar. Það er mjög mik­il­vægt að sam­fé­lag­ið taki hönd­um sam­an og styðji við þessi markmið því við náum ekki ár­angri nema við still­um öll sam­an strengi. Við héld­um ein­mitt mjög góða vinnu­stofu, hóp­ur­inn sem kem­ur að stjórn­un þessa verk­efn­is, sem eru  sér­fræð­ing­ar sem vinna að barna­mál­um á vel­ferð­ar­sviði og á fræðslu- og frí­stunda­sviði ásamt skóla­stjór­um. For­síðu­mynd­in er ein­mitt af þess­um hópi.

Bæj­ar­ráð sam­þykkti þann 15. maí að­gerð­ir í verk­efn­inu Barn­vænu sveit­ar­fé­lagi en það er unn­ið í sam­starfi við UNICEF á Ís­landi. Verk­efn­ið styð­ur sveit­ar­fé­lög við að inn­leiða Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna í alla sína starf­semi. Ung­mennaráð skip­ar stýri­hóp verk­efn­is­ins ásamt tveim­ur kjörn­um full­trú­um, starfs­fólki og um­sjón­ar­manni verk­efn­is­ins. Hóp­ur­inn hef­ur for­gangsr­að­að 31 að­gerð og stefnt er að því að skila loka­skýrslu verk­efn­is­ins í haust og sækja í fram­hald­inu um við­ur­kenn­ingu sem Barn­vænt sveit­ar­fé­lag.

Þá fór kosn­ing­in í Krakka Mosó fram þann 20 maí. Það var mjög góð þátttaka en nem­end­um grunn­skóla á mið- og ung­linga­stigi gafst kost­ur á að taka þátt. Alls voru 1.178 nem­end­ur á kjörskrá og 997 kusu, sem er 85 % kosn­inga­þátttaka. Úr­slit­in voru kynnt við há­tíð­lega at­höfn í Helga­fells­skóla.

Verk­efn­in sem voru valin voru eru eft­ir­talin:

  • Þrauta­braut á vatni
    Þrauta­braut úr ým­iss kon­ar trjá­bol­um yfir vatn. Fyr­ir­mynd­in er vatns­þrauta­braut­in í Kjarna­skógi fyr­ir utan Ak­ur­eyri. Hent­ar bæði börn­um og ung­ling­um.
  • Stór aparóla
    Há og löng aparóla með upp­hækk­uð­um byrj­un­ar­palli. Hugs­uð fyr­ir eldri börn og ung­linga. Stað­sett í brekku þann­ig að hægt sé að ná ágæt­is hraða. Nógu há til þess að fæt­urn­ir rek­ist ekki í jörð­ina.
  • Snún­ingsróla
    Snún­ingsróla með fjór­um örm­um og sæt­um. Ról­an fer í hringi og upp og nið­ur á sama tíma. Hugs­uð fyr­ir börn frá sex ára aldri.

Um þessar mundir fer fram staðarvalskönnun en stefnt er að því að hefja framkvæmdir núna í sumar.

Þá veitti íþrótta- og tóm­stunda­nefnd styrki til efni­legra ung­menna og ung­mennaráð fund­aði með bæj­ar­stjórn á mjög góð­um fundi.

En það var ekki allt jafn skemmti­legt í maí mán­uði þar sem frum­varp um breyt­ing­ar á Jöfn­un­ar­sjóði er í með­för­um um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar en með breyt­ing­unni falla nið­ur tekj­ur, um 250 millj­ón­ir króna á ári til Mos­fells­bæj­ar. Við skrif­uð­um ít­ar­lega um­sögn um mál­ið, reynd­ar þriðja um­sögn­in þar sem frum­vörp að breyt­ing­um á sjóðn­um eru orð­in þrjú sem hafa ver­ið lögð fram á síð­ast­liðn­um tveim­ur árum. Þá mætti ég á fund um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar þings­ins til að kynna okk­ar sjón­ar­mið, skrif­aði grein á Vísi og fór í við­tal á Rás 2.

Í maí var lögð fram áhættu­grein­ing fyr­ir Mos­fells­bæ til næstu 10 ára. KPMG vann grein­ing­una fyr­ir Mos­fells­bæ og í henni er far­ið ít­ar­lega yfir rekst­ur­inn, helstu áhætt­ur framund­an, samn­ing­inn um Blikastaði og spá um íbúa­fjölg­un og upp­bygg­ingu í hverf­inu auk þess sem gerð er til­laga að fjár­hags­leg­um mark­mið­um fyr­ir bæj­ar­yf­ir­völd. Það er ljóst að nokkr­ir þætt­ir hafa um­tals­verð áhrif á fjár­hag bæj­ar­sjóðs á kom­andi árum. Fyrst ber að telja þá stöðu sem er í skóla­bygg­ing­um í bæn­um, þ.e. kostn­aði við end­ur­bygg­ingu á Kvísl­ar­skóla, raka­vanda í kjall­ara Varmár­skóla sem þarfn­ast við­gerða og stöð­una á Hlað­hömr­um en ljóst er að ráð­ast þarf í kostn­að­ar­sama upp­bygg­ingu á leik­skól­an­um vegna skemmda.

Þá hef­ur frum­varp­ið um Jöfn­un­ar­sjóð mik­il áhrif á stöðu bæj­ar­sjóðs auk þess vaxtaum­hverf­is sem sveit­ar­fé­lög­in búa við. Um þess­ar mund­ir fer fram und­ir­bún­ing­ur að fjár­hags- og fjár­fest­inga­áætlun 2026 og þriggja ára áætlun og ljóst að það þarf að sýna tölu­vert að­hald í rekstr­in­um. Í upp­hafi árs var far­ið í 200 millj­óna króna hag­ræð­ingu og það tók vissu­lega á en mark­mið­ið var að fara í rekstr­ar­til­tekt sem hefði eins tak­mörk­uð áhrif á þjón­ustu við bæj­ar­búa og unnt væri. Það tókst ágæt­lega en áfram­hald­andi hag­ræð­ing­ar­að­gerð­ir munu á end­an­um kunna að leiða til þjón­ustu­skerð­ing­ar og/eða hækk­un gjalda. Eins og fram kem­ur í þess­ari um­fjöllun þá eru leik­skóla­gjöld lang lægst í Mos­fells­bæ. Þrátt fyr­ir það er með­al­ald­ur þeirra barna sem kom­ast í leik­skóla á með­al þeirra yngstu í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins. Hér er frétt sem birt­ist á mbl.is þann 7. júní með sam­an­burði á leik­skóla­gjöld­um á milli stærstu sveit­ar­fé­laga lands­ins.

Mos­fells­bær er ört vax­andi sveit­ar­fé­lag og það er ljóst að mið­að við verk­efna­fjöld­ann þá hef­ur ver­ið mik­il þörf á því að bæta þjón­ust­una í skóla- og ráð­gjafa­þjón­ustu og jafn­framt  í barna­vernd­ar­þjón­ustu og stuðn­ings­þjón­ustu vel­ferð­ar­sviðs. Fjár­magn­ið í verk­efn­ið Börn­in okk­ar, fara með­al ann­ars til að styrkja þessa þjón­ustu auk áherslna á for­varn­ir í gegn­um Ból­ið og lýð­heilsu­verk­efni.

For­síðu­mynd­in er frá vinnu­degi stýri­hóps um Börn­in okk­ar sem var hald­inn í Hlé­garði á mikl­um blíð­viðr­is­degi.

Þá er mynd frá at­höfn­inni í Helga­fells­skóla þeg­ar úr­slit KrakkaMosó voru kynnt. Einn­ig af  þess­um hressu stelp­um úr 10 bekk  sem héldu plöntu­sölu í gróð­ur­hús­inu til að safna fyr­ir út­skrift­ar­ferð.

Einn­ig er mynd frá mjög skemmti­legri heim­sókn í Huldu­götu til bygg­ing­ar­fé­lags­ins Bakka sem var að af­henda síð­ustu íbúð­irn­ar í nýj­um fjöl­býl­is­hús­um. Mos­fells­bær, hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un og Bakki hafa átt mjög gott sam­st­arf um upp­bygg­ingu íbúða í Huldu­götu 2-4 og 6-8 sem upp­fylla skil­yrði til þess að fá hlut­deild­ar­lán. Með­al ann­ars var gerð deili­skipu­lags­breyt­ing til að liðka fyr­ir upp­bygg­ing­unni með hag­muni ungs fólks og fyrstu kaup­enda að leið­ar­ljósi. Á mynd­inni með mér er Örn Kjærnested fram­kvæmda­stjóri bygg­ing­ar­fé­lags­ins Bakka.

Þá er mynd frá mjög vel heppn­uðu opnu húsi í Kvísl­ar­skóla í til­efni þess að skól­inn var 50 ára fyr­ir tveim­ur árum en ákveð­ið var að halda veg­lega upp á það, þeg­ar all­ar end­ur­bæt­ur á hús­næð­inu væru bún­ar.

Njót­ið sum­ars­ins og góða veð­urs­ins sem er á næsta leiti en spáð er heil­sól á höf­uð­borg­ar­svæð­inu alla næstu daga.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00