Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
23. maí 2025

Í vik­unni var op­inn um­ræðufund­ur og vinnu­stofa með for­eldr­um á veg­um Mos­fells­bæj­ar í sam­starfi við SAM­MOS (Sam­tök for­eldra­fé­laga grunn­skóla Mos­fells­bæj­ar) þar sem rætt var um verk­efn­ið Börn­in okk­ar og unn­ið að mót­un sam­skipta­sátt­mála fyr­ir skóla­sam­fé­lag­ið í Mos­fells­bæ. Um 30 for­eldr­ar mættu til fund­ar­ins og tóku virk­an þátt en fund­ur­inn var sjálf­stætt fram­hald af fund­um sem haldn­ir voru fyrr á þessu skóla­ári.

Sátt­mál­inn er ein af lyk­il­að­gerð­um verk­efn­is­ins Börn­in okk­ar og verð­ur hann þró­að­ur áfram með þátt­töku nem­enda, starfs­fólks leik- og grunn­skóla, frí­stunda­heim­ila, fé­lags­mið­stöðva og íþrótta­fé­laga. Stefnt er að því að sátt­mál­inn verði lif­andi og sam­eig­in­legt verk­færi til að efla sam­skipti, virð­ingu og vel­ferð í skóla­sam­fé­lag­inu í bæn­um.

Vanda Sig­ur­geirs­dótt­ir frá KVAN stýrði vinnu­stof­unni þar sem fjöl­mörg gagn­leg sjón­ar­mið, hug­mynd­ir og reynsla for­eldra kom fram og verð­ur það nýtt í áfram­hald­andi vinnu.

Mos­fells­bær þakk­ar for­eldr­um fyr­ir virka þátt­töku og mun leggja áherslu á áfram­hald­andi sam­tal og sam­ráð við fjöl­skyld­ur bæj­ar­ins í þessu mik­il­væga um­bóta­verk­efni.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00