Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
2. júní 2022

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til­lögu að deili­skipu­lagi, skv. 1. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða til­lögu að nýju deili­skipu­lagi suð­vest­ur af Blikastaðalandi. Fyr­ir­hug­að er að reisa byggð fyr­ir at­vinnukjarna, þar sem áhersla er lögð á sjálf­bærni og sam­nýt­ingu, nátt­úru og að­lað­andi um­hverfi. Sam­göngu­ás borg­ar­línu mun liggja í gegn­um skipu­lags­svæð­ið.

Deili­skipu­lags­svæð­ið er um 16,9 ha og af­markast af Vest­ur­lands­vegi, Kor­p­úlfs­staða­vegi, Korpu og sveit­ar­fé­laga­mörk­um Reykja­vík­ur og Mos­fells­bæj­ar.

Til­lag­an verð­ur til sýn­is í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar Þver­holti 2 og birt á vef Mos­fells­bæj­ar svo þau sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana at­huga­semd­ir. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal senda þær til skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ eða í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

At­huga­semda­frest­ur er frá 2. júní til og með 29. júlí 2022.

Sér­stak­ur kynn­ing­ar­fund­ur íbúa með skipu­lags­ráð­gjöf­um verð­ur aug­lýst­ur síð­ar.

Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar
Krist­inn Páls­son

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00