Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 19. mars 2025 að kynna og auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Skálahlíð, næst Baugshlíð og Vesturlandsvegi.
Tillagan sýnir nýtt auglýsingamastur fyrir tvo rafræna LED skjái, um 6×4 m að stærð eða tæpir 24 m2. Skjáirnir tveir snúa frá byggð, til suðausturs og -vesturs. Ljósmagni verður stýrt í samræmi við ljósmagn umhverfis hverju sinni. Auglýsingamastrið stendur á steyptum undirstöðum, mastrið er um 8 m hátt og verður næst Baugshlíð. Mastrið verður utan veghelgunarsvæðis Vesturlandsvegar. Uppdráttur sýnir leiðbeinandi staðsetningu og gæti tekið minniháttar breytingum á framkvæmdastað.
Tillagan er kynnt í Skipulagsgáttinni, í bæjarblaðinu Mosfellingi og í Lögbirtingarblaðinu.
Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri með rafrænum hætti. Skila skal inn skriflegum umsögnum í Skipulagsgáttina. Athugasemdafrestur er til og með 17. júlí 2025.
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar