Mosfellsbær auglýsir hér með breytingartillögu á samþykktum deiliskipulögum, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar með er kynningarmálum vegna breytingar hagað skv. 44. gr. um grenndarkynningar.
Breyting á deiliskipulagi við Fossatungu 9-15, parhús
Breyting á deiliskipulagi Leirvogstungu, breytingin felst í að raðhúsalengju með fimm íbúðum er breytt í fjórar íbúðir.
Tillagan verður til sýnis á upplýsingatorgi Mosfellsbæjar, Þverholti 2, frá 21. ágúst til og með 25. september 2020, þeir sem þess óska geta kynnt sér þær og gert athugasemdir. Uppdrættir eru einnig birtir á vef Mosfellsbæjar á slóðinni: mos.is/skipulagsauglysingar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær, eða í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is eigi síðar en 25. september 2020.
21. ágúst 2020
Kristinn Pálsson
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: