Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 7. desember 2023 var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, Reykjalundarvegur að Húsadal – Bjargslundur 4.
Breytingin felur í sér stækkun á byggingareit lóðar til vesturs, þar sem heimilt verður að byggja allt að 50 m² bílskúr. Nýtingarhlutfall fer úr 0,19 í 0,24. Hámarkshæð bílskúrs er 3,4 m.
Í þessu tilviki er um að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra breytinga sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða sendar í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Einnig er hægt að senda athugasemdir rafrænt í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunnar.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 14. janúar 2024.