Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 29. nóvember sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Fellshlíðar.
Um er að ræða leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús. Viðbygging verður til austurs, 57,1 m² að stærð og úr timbri. Viðbygging er byggð ofan á steypta sökkulveggi og tengd við núverandi hús með tengibyggingu. Einnig er um að ræða leyfi til að byggja útigeymslu við norðurhlið núverandi húss í samræmi við gögn. Á meðfylgjandi uppdráttum er gerð nánari grein fyrir framkvæmd þeirri sem sótt er um.
Í þessu tilviki er um að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 10. febrúar nk.