Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 6. maí 2024 var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Arnartanga 55. Í þessu tilviki er um að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Óskað er eftir leyfi til að byggja 3,5 m² anddyri við raðhús að Arnartanga 55.
Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 31. júlí nk.