Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Á fundi Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar þann 11. apríl sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna í sam­ræmi við 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, á um­sókn eig­enda Leiru­tanga 10.

Um er að ræða leyfi til að stækka hús­ið með því að hækka þak­mæni og fá nýt­an­lega efri hæð. Hæsta hæð þak­mæn­is fyr­ir breyt­ingu er 4.87m en verð­ur 6.58 m eft­ir breyt­ingu. Hækk­ar um 1,7m. Stærð húss fyr­ir breyt­ingu er 158.4 m2 (skv. Þjóð­skrá) en verð­ur 237,4 m2 eft­ir breyt­ingu. Nýt­an­leg­ir m2 efri hæð­ar verða 79,1. Heild­ar bygg­ing­armagn á lóð með bíl­skúr eru 197 m2 fyr­ir breyt­ingu, nýt­ing­ar­hlut­fall, N= 0,24. Eft­ir breyt­ingu verða heild­ar bygg­ing­armagn á lóð með bíl­skúr 276,6 m2 og N=0,35. Ekki er ver­ið að stækka um­fang húss nema á hæð­ina, fót­spor þess breyt­ist ekki.

Á með­fylgj­andi upp­drátt­um er gerð nán­ari grein fyr­ir fram­kvæmd þeirri sem sótt er um.

Í þessu til­viki er um að ræða um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi í þeg­ar byggðu hverfi þar sem deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir. Hér með er gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag@mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er rúm­lega 4 vik­ur frá dag­setn­ingu frétt­ar­inn­ar, þ.e. til og með 14. júní nk.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00