Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 17. júlí síðastliðinn var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda um byggingarleyfi að Leirutanga 17A og 17B.
Um er að ræða leyfi til að byggja 13,2 fermetra sólskála og stækka stofu til suðurs, í samræmi við gögn unnin af PRV hönnun dags. 11.06.2023. Meðfylgjandi er uppdráttur að tillögu sem sýnir framangreindar breytingar.
Í þessu tilviki er um að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 24. ágúst nk.
Tengt efni
Breyting á deiliskipulagi Helgafellshverfis: Ný grenndarstöð við Vefarastræti
Grenndarkynning á umsókn um byggingaleyfi – Hjarðarland 1
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 28. júlí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Hjarðarlands 1, Mosfellsbæ.
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leirvogstungu – Laxatunga 43
Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Laxatungu 43.