Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. nóvember 2023

Á af­greiðslufundi Skipu­lags­full­trúa Mos­fells­bæj­ar þann 6. nóv­em­ber sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, um­sókn eig­enda Greni­byggð­ar 2, Mos­fells­bæ.

Um er að ræða leyfi fyr­ir við­bygg­ingu við endagafl par­húss nr. 2 við Greni­byggð. Við­bygg­ing­in er 28,5 m² úr stein­steypt­um ein­ing­um og í henni eru tvö íbúð­ar­her­bergi ásamt tengigangi. Á með­fylgj­andi upp­drátt­um er gerð nán­ari grein fyr­ir fram­kvæmd þeirri sem sótt er um.

Í þessu til­viki er um að ræða um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi í þeg­ar byggðu hverfi þar sem deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir. Hér með er gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er til og með 13. des­em­ber 2023.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00