Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. febrúar 2024

Á fundi Skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar þann 19. janú­ar sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna í sam­ræmi við 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, um­sókn eig­enda Berg­holts 2.

Um er að ræða leyfi til að byggja 22,7 m² við­bygg­ingu við SA hlið húss. Í bygg­ingu verð­ur borð­stofa og vinnu­her­bergi. Bygg­ing­in er að mestu úr timbri á steypt­um grunni, þak er fram­hald af þaki húss.

Í þessu til­viki er um að ræða um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi í þeg­ar byggðu hverfi þar sem deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir. Hér með er gef­inn kost­ur á að koma skrif­leg­um at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ eða send­ar í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er til og með 14. mars 2024.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00