Á afgreiðslufundi Skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 27. febrúar sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Hlíðartúns 2A og 2B, Mosfellsbæ.
Um er að ræða steinsteypt einnar hæðar parhús, Hlíðartún 2A, 122,0 m² og Hlíðartún 2B, 131,9 m².
Í þessu tilviki er um að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 13. maí nk.