Álagningarseðlar fasteignagjalda eru birtir rafrænt á island.is og þjónustugátt Mosfellsbæjar.
Fasteignagjöld skiptast á tíu gjalddaga frá 1. febrúar til 1. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga við vanskil. Sé heildar fjárhæð fasteignagjalda fyrir árið 2023 undir kr. 40.000.- er einn gjalddagi þann 1. febrúar.
Fasteignagjöld má greiða í banka, netbanka eða boðgreiðslum á greiðslukort. Greiðsluseðlar eru ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega. Skráning á boðgreiðslum fer fram í gegnum Þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700.
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega er reiknaður sjálfkrafa í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og Ríkisskattstjóra. Það þarf því ekki að sækja um afsláttinn sérstaklega. Reglur og skilyrði afsláttar má sjá á mos.is/fasteignagjold.
Tengt efni
Áhugaverðar staðreyndir úr ársskýrslu Mosfellsbæjar 2023
Vinnustofa um Álafosskvos
Álafosskvosin er fallegt svæði með ríka sögu sem í gegnum tíðina hefur dregið til sín marga gesti, bæði innlenda og erlenda.
Unnið að innleiðingu á farsældarlögum