Álagningarseðlar fasteignagjalda eru birtir rafrænt á island.is og á Mínum síðum Mosfellsbæjar.
Fasteignagjöld skiptast á tíu gjalddaga frá 1. febrúar til 1. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga við vanskil. Sé heildar fjárhæð fasteignagjalda fyrir árið 2025 undir kr. 40.000 er einn gjalddagi þann 1. febrúar.
Fasteignagjöld má greiða í banka, netbanka eða með boðgreiðslum á greiðslukort.
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega er reiknaður sjálfkrafa í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Ríkisskattsstjóra. Það þarf því ekki að sækja um afsláttinn sérstaklega.
Nánari upplýsingar:
Tengt efni
Fyrsta skóflustunga fyrir íbúðir Bjargs íbúðaleigufélags í Mosfellsbæ
Samstarfssamningar Mosfellsbæjar við íþrótta- og tómstundafélög endurnýjaðir
Samningarnir gilda frá árinu 2025 til loka ársins 2027.
Starfsemi Mosfellsbæjar eftir hádegi 6. febrúar 2025