Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
29. janúar 2021

Til­kynn­ing til eig­enda fast­eigna í Mos­fells­bæ.

Álagn­ing­ar­seðl­ar fast­eigna­gjalda eru birt­ir ra­f­rænt á is­land.is og þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar.

Fast­eigna­gjöld skipt­ast á tíu gjald­daga frá 1. fe­brú­ar til 1. nóv­em­ber. Eindagi fast­eigna­gjalda er þrjá­tíu dög­um eft­ir gjald­daga og fell­ur all­ur skatt­ur árs­ins í gjald­daga við vanskil. Sé heild­ar fjár­hæð fast­eigna­gjalda fyr­ir árið 2021 und­ir kr. 40.000.- er einn gjald­dagi þann 1. fe­brú­ar.

Fast­eigna­gjöld má greiða í banka, net­banka eða boð­greiðsl­um á greiðslu­kort. Greiðslu­seðl­ar eru ekki send­ir nema þess hafi ver­ið óskað sér­stak­lega. Skrán­ing á boð­greiðsl­um fer fram í gegn­um Þjón­ustu­ver Mos­fells­bæj­ar í síma 525-6700.

Af­slátt­ur til tekju­lágra elli- og ör­orku­líf­eyr­is­þega er reikn­að­ur sjálf­krafa í sam­vinnu við Þjóð­skrá Ís­lands og Rík­is­skatt­stjóra. Það þarf því ekki að sækja um af­slátt­inn sér­stak­lega. Regl­ur og skil­yrði af­slátt­ar má sjá á mos.is/fast­eigna­gjold.

Þjón­ustu­ver Mos­fells­bæj­ar veit­ir nán­ari upp­lýs­ing­ar og send­ir þeim sem þess óska út­prent­aða álagn­ing­ar­seðla og greiðslu­seðla.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00