Þá er dreifing að verða hálfnuð hérna í Mosfellsbæ og komið að tunnum áætlaðar í viku 25.
Íbúar í eftirtöldum götum fá afhentar nýjar tunnur fyrir nýja úrgangsflokkunarkerfið samkvæmt sorphirðudagatali okkar mánudaginn 19. júní og þriðjudaginn 20. júní.
Eins og komið hefur fram erum við öll að fara að safna matarleifum til viðbótar við fyrri úrgangsflokka fyrir utan þá breytingu að plastumbúðir fara framvegis í sér tunnu.
Ásamt nýju tunnunum fá íbúar plastkörfu og búnt af bréfpokum til að safna matarleifum í eldhúsi.
Athygli er vakin á því að í haust verður farið í að skoða fleiri útfærslur, en fyrst um sinn fá íbúar í sérbýlum þrjár tunnur frá Mosfellsbæ.
Leirvogstunguhverfi
- Leirvogstunga
- Laxatunga
- Kvíslartunga
- Vogatunga
- Fossatunga
Dreifbýli í Mosfellsbæ
Tengt efni
Samið um sorphirðu til næstu ára
Snjallar grenndarstöðvar í Mosfellsbæ
Á næstu vikum verða þrjár grenndarstöðvar í Mosfellsbæ gerðar snjallar.
Íbúar öflugir í frágangi eftir áramót
Miklu magni af flugeldarusli var safnað í sérstakan gám á vegum bæjarins núna um áramótin.