Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
  • Til­laga að deili­skipu­lagi og til­laga að breyt­ingu á deili­skipu­lagi: Heið­ar­hvamm­ur í landi Mið­dals og Desja­mýri 3

    Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­talda til­lögu að deili­skipu­lagi og skv. 1. mgr. 43. gr. sömu laga til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi: Heið­ar­hvamm­ur í landi Mið­dals, til­laga að deili­skipu­lagi og Desja­mýri 3, til­laga að breyt­ingu á deili­skipu­lagi. Of­an­greind­ar til­lög­ur verða til sýn­is í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar Þver­holti 2, frá 28. sept­em­ber. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal senda þær til skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar eigi síð­ar en 9. nóv­em­ber

  • Krika­hverfi - mið­svæði og íbúð­ar­byggð

    Opið hús, kynn­ing á til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi­verð­ur í bóka­safni Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, mánu­dag­inn 3. og þriðju­dag­inn 4. októ­ber nk. frá kl. 17:00 – 18:00 báða dag­ana.

  • Deili­skipu­lag – Þing­valla­veg­ur í Mos­fells­dal

    Kynn­ing­ar­fund­ur um til­lögu að deili­skipu­lagi fyr­ir Þing­valla­veg í Mos­fells­dal verð­ur hald­inn í fund­ar­saln­um Helga­felli á 2. hæð í Kjarna, Þver­holti 2, þriðju­dag­inn 27. sept­em­ber næst kom­andi kl. 17:00 – 18:00. Kynnt verð­ur til­laga að deili­skipu­lagi fyr­ir Þing­valla­veg í Mos­fells­dal. Um er að ræða kynn­ingu á deili­skipu­lagi skv. grein 5.6.1. í skipu­lags­reglu­gerð. Á fund­in­um verð­ur gerð grein fyr­ir til­lög­unni og fyr­ir­spurn­um svarað. Íbú­ar og að­r­ir hags­muna­að­il­ar eru hvatt­ir til að mæta.

  • 2 til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi: 3. áfangi Helga­fells­hverf­is, Snæfríð­argata 1-21 og Krika­hverfi

    Tvær til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi: 3. áfangi Helga­fells­hverf­is, Snæfríð­argata 1-21 og Krika­hverfi, mið­svæði og íbúð­ar­byggð. Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar tvær til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi: Snæfríð­argata 1-21, breyt­ing­ar­til­lag­an ger­ir ráð fyr­ir 5 tveggja hæða fjöl­býl­is­hús­um, fjög­ur með­fram Snæfríð­ar­götu og einu norð­an við þau. Krika­hverfi, mið­svæði og íbúð­ar­byggð, breyt­ing­arn­ar felast m.a. í því að bíla­stæði á nokkr­um lóð­um eru breikk­uð og bil á milli þeirra minnkuð og bygg­ing­ar­reit­ir minnka lít­il­lega.

  • Að­al­skipu­lag Mos­fells­bæj­ar 2011-2030, Til­laga að breyt­ingu – Langi­hrygg­ur

    Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar aug­lýs­ir hér með til­lögu að breyt­ingu á Að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 sam­kvæmt 1. mgr. 36. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Í breyt­ing­unni felst að land­notk­un á Langa­hrygg aust­an Leirtjarn­ar í of­an­verð­um Mos­fells­dal er breytt úr land­bún­að­ar­svæði (228-L, 7.5 ha.) ásamt aðliggj­andi opnu óbyggðu svæði alls 10 ha. í af­þrey­ing­ar- og ferða­manna­svæði (AF).

  • 3 til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi: 3. áfangi Helga­fells­hverf­is, 2 til­lög­ur og Laxa­tunga 36-54

    Þrjár til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi: 3. áfangi Helga­fells­hverf­is, 2 til­lög­ur og Laxa­tunga 36-54. Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar þrjár til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi:Uglugata 32-46, til­lag­an ger­ir ráð fyr­ir breyt­ing­um á hús­gerð, þ.e. að á lóð­irn­ir komi tveggja hæða rað­hús með 4 íbúð­um og tvö fjöl­býl­is­hús. Uglugata 1-5, um er að ræða þrjár lóð­ir fyr­ir tveggja hæða ein­býl­is­hús. Laxa­tunga 36-54, Leir­vogstungu, til­lag­an er um að 7 af tíu tveggja hæða rað­hús­um

  • Tvær til­lög­ur að deili­skipu­lagi: Hest­hús á landi nr. 123703 og Ali­fugla­bú að Suð­ur Reykj­um

    Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 tvær til­lög­ur að deili­skipu­lagi og um­hverf­is­skýrslu skv. lög­um nr. 105/2006.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00