Þrjár tillögur að breytingum á deiliskipulagi: 3. áfangi Helgafellshverfis, 2 tillögur og Laxatunga 36-54. Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtaldar þrjár tillögur að breytingum á deiliskipulagi:Uglugata 32-46, tillagan gerir ráð fyrir breytingum á húsgerð, þ.e. að á lóðirnir komi tveggja hæða raðhús með 4 íbúðum og tvö fjölbýlishús. Uglugata 1-5, um er að ræða þrjár lóðir fyrir tveggja hæða einbýlishús. Laxatunga 36-54, Leirvogstungu, tillagan er um að 7 af tíu tveggja hæða raðhúsum
Þrjár tillögur að breytingum á deiliskipulagi:
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtaldar þrjár tillögur að breytingum á deiliskipulagi:
Uglugata 32-46
Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á húsgerð, þ.e. að á lóðirnir komi tveggja hæða raðhús með 4 íbúðum og tvö fjölbýlishús með samtals 16 íbúðum í stað tveggja „klasa“ með samtals 14 íbúðum. Gert er ráð fyrir byggingarreit neðanjarðarbílageymslu á milli fjölbýlishúsanna og kvöð um gönguleið gegnum lóðirnar. Leiksvæði við SA-horn svæðisins er fellt niður.
Uglugata 1-5
Um er að ræða þrjár lóðir fyrir tveggja hæða einbýlishús skv. gildandi skipulagi, og gerir tillagan ráð fyrir að þær breytist í parhúsalóðir, fyrir fjögur einnar hæðar parhús. Nýtingarhlutfall verði óbreytt (0,45).
Laxatunga 36-54, Leirvogstungu
Tillagan er um að 7 af tíu tveggja hæða raðhúsum af gerð R-IID breytist í einnar hæðar raðhús af gerð R-IJ. Meginbyggingarreitur stækki en byggingarreitir fyrir útbyggingar falli út. Hámarksnýtingarhlutfall samstæðunnar verði 0,4.
Ofangreindar tillögur verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 8. júlí 2016 til og með 19. ágúst 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar hér á heimasíðunni:
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfells-bæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 19. ágúst 2016.
Tengt efni
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum:
Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna aukinna byggingaheimilda í íbúðarbyggð 330-Íb, Háeyri
Skipulagsstofnun staðfesti 28. mars 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn Mosfellsbæjar þann 1. mars 2023.