Framkvæmdir og skipulag
1. gr.
Af öllum húseignum í Mosfellsbæ skal greiða árlega fráveitugjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem skal varið til þess að standa straum af kostnaði við fráveitu sveitarfélagsins, sbr. 23. gr. samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ, nr. 1014/2010.
2. gr.
Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera mat fasteigna þ.e. samanlagt fasteignamat húsa og lóða, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,090% af álagningarstofni.
Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
3. gr.
Fráveitugjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar og ber hann ábyrgð á greiðslu gjaldsins.
Fráveitugjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur fráveitugjaldið lögveðsréttar með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði, sbr. 16. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 23. gr. samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ.
4. gr.
Við álagningu árlegs fráveitugjalds getur bæjarstjórn samþykkt að nýta heimild í 7. mgr. 15. gr. laga nr. 9/2009, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega.
5. gr.
Í þeim tilvikum sem Mosfellsbær nýtir heimild samkvæmt 20. gr. samþykkta um fráveitu sveitarfélagsins til að innheimta stofngjald skal það nema kr. 247.220 fyrir hvern 6″ heimæðarstút.
Fyrir heimæðarstúta stærri en 6″ greiðast kr. 384.707 eða raunkostnaður veitunnar hverju sinni.
Í þeim tilvikum þar sem lengd heimæðar frá stofnæð að lóðarmörkum fer yfir 10 metra skal innheimta raunkostnað hverju sinni.
Óski húseigandi eftir færslu fráveituheimæðar að nýjum tengipunkti greiðir hann útlagðan kostnað veitunnar.
6. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 817. fundi þann 7. desember 2022, með vísan til samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ nr. 1014/2010, sbr. og 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna, og reglugerð um fráveitur sveitarfélaga, nr. 982/2010, og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1724/2021.
Mosfellsbæ, 8. desember 2022.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
B deild – Útgáfud.: 10. janúar 2023
Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir: | ||
---|---|---|
Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Parhús, tvíbýlishús | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Raðhús, keðjuhús | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Fjölbýlishús | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Verslunar-, þjónustuhúsnæði o.fl. | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Iðnaðarhúsnæði | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Hesthús (að undanskildum stækkunum allt að 20 m2*) | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Hús til landbúnaðarafnota | 7,50% | kr. 20.695 pr. m² |
Bílakjallarar | 3,75% | kr. 10.347 pr. m² |
Færanlegar kennslustofur | 1% | kr. 2.759 pr. m² |
Gjaldskrá gildir frá 1. janúar 2023.
Framangreindar fjárhæðir taka breytingum tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhúss.
Gjaldskrá byggð á samþykkt um gatnagerðargjöld á deiliskipulögðum svæðum í Mosfellsbæ frá 17. maí 2017.
I. KAFLI
1. gr.
Hitaveita Mosfellsbæjar selur afnot af heitu vatni úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða verða gerð í Mosfellsbæ og til þeirra húsa, sem fá vatn frá aðfærsluæð, eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari samanber reglugerð fyrir Hitaveitu Mosfellsbæjar.
2. gr.
Hitaveita Mosfellsbæjar lætur hverju húsi, sem er í sambandi við kerfi hennar, í té vatnsmagn er áætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi veitunnar.
3. gr.
Vatnsmagn það, sem látið er í té samkvæmt 1. og 2. gr., er afhent notanda um rennslismæli sem hitaveitan leggur til og annast viðhald á. Mælir þessi skal innsiglaður og er húseiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli mælisins.
II. KAFLI
4. gr.
1. Gjald fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:
Heitt vatn um rennslismæli: | kr. | 2% skattur | Með 11% vsk. | Grunnur |
A. Fyrir hvern rúmmetra vatns. | 119,03 | 2,38 | 134,50 | kr./m3 |
2. Mælaleiga:
Auk þess greiðist fastagjald árlega háð afköstum rennslismælisins en óháð töxtum að öðru leyti.
Fastagjaldi er skipt í þrjá flokka: | kr./dag | 2% skattur | Með 11% vsk. | Grunnur |
A.15-20 mm. | 53,51 | 1,07 | 60,46 | kr./dag |
B. 25-50 mm. | 119,90 | 2,40 | 135,49 | kr./dag |
C. 65 mm. og stærri. | 224,30 | 4,49 | 253,46 | kr./dag |
3. Sérstakir notendur:
Sérstakir notendur greiða fyrir afnot af heita vatninu sem hér segir:
Notandi | kr./m3 | Athugasemdir | 2% skattur | Með 11% skatt | Grunnur |
A. Almenningssundlaugar. | 38,78 | Gildir fyrir almenningssundlaugar í eigu sveitarfélaga. Með taxtanum telst baðvatn og vatn til set- og vaðlauga. | 0,78 | 43,82 | kr./m3 |
B. Sundlaugar stofnana. | 66,71 | Til þessa flokks teljast sundlaugar sem reknar eru af stofnunum sem ekki eru í beinni eigu sveitarfélaga. Með taxtanum telst baðvatn og vatn til set- og vaðlauga. | 1,33 | 75,38 | kr./m3 |
C. Gróðurhús. | 52,20 | Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni. | 1,04 | 58,99 | kr./m3 |
D. Vatnsverð án flutningsgjalda. | 88,64 | 1,77 | 100,16 | kr./m3 | |
E. Upphitaðir íþróttavellir utandyra. | 102,31 | 2,05 | 115,61 | kr./m3 | |
F. Iðnaðarvatn í framleiðsluferla. | 84,29 | 1,69 | 95,25 | kr./m3 |
Taxtinn gildir fyrir þá aðila sem eiga heimæðar sínar og sjá um rekstur þeirra og viðhald á eigin kostnað. Mælir er þá staðsettur veitumegin við heimæðina. Mælagjaldinu er dreift jafnt niður á fjölda reikningstímabila eins og þau eru ákveðin hverju sinni.
4. Innheimtuviðvörun:
Ef til vanskila kemur bætist við gjald vegna innheimtuviðvörunar, 20 dögum eftir gjalddaga. Innheimtugjöld miðast við heimildir í reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar. Gjald vegna innheimtuviðvörunar er kr. 950 án vsk.
5. gr.
Fjöldi reikningstímabila, sem þó skulu eigi vera færri en fjögur á ári, og innheimtutilhögun hitaveitugjalda hverju sinni sbr. 4. gr. skulu ákveðin af bæjarstjóra. Það teljast vanskil sé reikningur ekki greiddur á gjalddaga.
Hitaveita Mosfellsbæjar skal tilkynna notendum sínum með hæfilegum fyrirvara ef hún ákveður að breyta fjölda reikningstímabila hitaveitureikninga og skal jafnan miða við að breytingar á gjaldskrá taki gildi við upphaf hvers reikningstímabils til að auðvelda notendum úrlestur hitaveitureikninga og hitaveitunni álagningu þeirra.
III. KAFLI
6. gr.
Almenn verð heimæða gilda á nýbyggingasvæðum þar sem inntaksrými er samkvæmt skilmálum. Verðin gilda ekki þar sem gengið hefur verið varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðamörkum, en þar greiðir umsækjandi til samræmis við kostnaðaráætlun. Geri húseigandi eða lóðarhafi breytingar á skipulagi fasteignar frá útgefnu skipulagi sveitarfélags, ber hann að auki allan kostnað við færslu eða breytingar veitulagna og inntaksbúnaðar á inntaksstað.
Heimæðargjald Hitaveitu Mosfellsbæjar skal vera sem hér segir, fyrir eina heimæð:
Sverleiki pípu | Upphæð án vsk. kr. | Með 11% skatt | Með 24% vsk | Grunnur |
Stærð DN20 (25mm PEX) | 192.192 | 213.333 | 238.318 | kr./stk. |
Stærð DN25 (32mm PEX) | 365.708 | 405.936 | 453.478 | kr./stk. |
Stærð DN32 (40mm PEX) | 549.195 | 609.607 | 681.002 | kr./stk. |
Stærð DN40 (50mm PEX) | 1.123.276 | 1.246.836 | 1.392.862 | kr./stk. |
Stærð DN50 (63mm PEX) | 1.820.719 | 2.020.998 | 2.257.691 | kr./stk. |
Stærð DN65 (75mm PEX) | 3.639.460 | 4.039.800 | 4.512.930 | kr./stk. |
Stærð DN80 (90mm PEX) | 7.273.797 | 8.073.914 | 9.019.508 | kr./stk. |
Stærð heimæðar er ákvörðuð af Hitaveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupenda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar er minni en 20 metrar gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 20 metra er heimilt að innheimta 10% af heimæðagjöldum 20 til 32 mm og 1% af stærðum 40 til 80 mm. Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengipunkti greiðir hann heimæðagjöld að nýju.
Gjald vegna tengingar vinnuvatns er kr. 117.880 án vsk.
Heimæðargjald skal greiðast áður en heimæð tengist hitakerfi hússins, samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Nú eru fleiri en eitt hitunarkerfi í húsinu með sérstökum hemlum eða mælum frá hitaveitunni og skal þá greiða kr. 53.979 aukalega fyrir hvern mæli/hemil.
Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari og tekur mið af gildandi reglum um virðisaukaskatt á hverjum tíma.
7. gr.
Nú eru leyfð afnot af hitaveitunni til annars en húshitunar, og er þá bæjarráði heimilt að ákveða gjald fyrir þau afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.
8. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda.
9. gr.
Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð húseiganda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Til slíkra aðgerða má þó fyrst grípa eftir eindaga og að undangenginni skriflegri viðvörun, sem sendist kaupanda með eigi skemmri en þriggja daga fyrirvara. Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er, kr. 23.097 í hvert skipti sem opnað er.
10. gr.
Eftirlitsmanni Hitaveitu Mosfellsbæjar skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.
11. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Mosfellsbæjar, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. febrúar 2023. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 122/2022.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. janúar 2023.
F. h. r.
Sigríður Svana Helgadóttir.
Hreinn Hrafnkelsson.
B-deild – Útgáfudagur:
1. gr.
Viðskiptavinir Mosfellsbæjar skulu greiða fyrir ljósritun, stækkun og minnkun þeirra gagna sem þeir óska eftir hverju sinni svo sem hér greinir.
2. gr.
Ljósritun:
- A0 – 800 kr.
- A1 – 500 kr.
- A2 – 300 kr.
- A3 – 200 kr.
- A4 – 200 kr.
3. gr.
Stækkun/minnkun:
A0
- A0-A1 – 1.500 kr.
- A0-A2 – 1.500 kr.
- A0-A3 – 1.500 kr.
A1
- A1-A0 – 1.500 kr.
- A1-A2 – 800 kr.
- A1-A3 – 800 kr.
- A1-A4 – 800 kr.
A2
- A2-A0 -1.500 kr.
- A2-A1 – 800 kr.
- A2-A3 – 400 kr.
- A2-A4 – 400 kr.
A3
- A3-A0 – 1.500 kr.
- A3-A1 – 800 kr.
- A3-A2 – 300 kr.
- A3-A4 – 300 kr.
A4
- A4-A1 – 800 kr.
- A4-A2 – 300 kr.
- A4-A3 – 100 kr.
4. gr.
- Rafræn sending á allt að 5 teikningum – 800 kr.
- Rafræn sending á allt að 10 teikningum eða fleiri – 1.200 kr.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar og gildir frá 1. janúar 2011
Samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 549. fundi þann 22. desember 2010
1. gr.
Af öllum húseignum í Mosfellsbæ sem staðsettar eru á deiliskipulögðum íbúðarsvæðum og á lögbýlum þar sem fráveituvatn húseigna er leitt í rotþrær skal greiða árlegt rotþróargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem skal varið til þess að standa straum af kostnaði við hreinsun og tæmingu rotþróa í sveitarfélaginu, sbr. 18. gr. samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ, nr. 1014/2010.
2. gr.
Fyrir tæmingu hverrar rotþróar, skal greiða árlega kr. 50.760. Sé ekkert mannvirki á lóð, greiðist ekki rotþróargjald. Gjalddagar rotþróargjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu hans.
Óski húseigandi eftir því að rotþró sé tæmd til viðbótar við reglubundna tæmingu, skal hann greiða fyrir slíka tæmingu samkvæmt reikningi losunaraðila.
3. gr.
Rotþróargjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar og ber hann ábyrgð á greiðslu gjaldsins.
Rotþróargjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur rotþróargjaldið lögveðsréttar með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði, sbr. 23. gr. í samþykkt um fráveitu Mosfellsbæjar.
4. gr.
Við álagningu árlegs rotþróargjalds getur bæjarstjórn samþykkt að nýta heimild í 7. mgr. 15. gr. laga nr. 9/2009, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega.
5. gr.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 817. fundi þann 7. desember 2022 með vísan til samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ nr. 1014/2010, staðfestist hér með skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar. Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um sama efni nr. 1726/2021.
Mosfellsbæ, 8. desember 2022.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
B deild – Útgáfud.: 10. janúar 2023
1. gr.
Fyrir útgáfu leyfa, úttektir, vottorð, skjalagerð, yfirlestur gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Mosfellsbær veitir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfisskyldra framkvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir Mosfellsbær í umboði bæjarstjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Fyrir neðangreindar úttektir og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 skal innheimta gjöld sem hér segir:
A) Úttekt vegna byggingarstjóraskipta, sbr. 30. gr. – 25.000 kr.
B) Áfangaúttekt, sbr. 34. gr. – 13.400 kr.
C) Lokaúttekt, sbr. 36. gr.
C1) 5 íbúðir eða færri og atvinnuhús undir 2.000 m² – 25.000 kr.
C2) 6-19 íbúðir og atvinnuhús 2.000 – 10.000 m² – 37.400 kr.
C3) Fleiri en 20 íbúðir og atvinnuhús stærra en 10.000 m² – 49.900 kr.
D) Stöðuúttekt, öryggisúttekt, sbr. 35. gr. – 25.000 kr.
E) Byggingarleyfi/byggingarheimild, sbr. 13. gr., afgreiðslugjald – 14.100 kr.
F) Byggingarleyfi/byggingarheimild, sbr. 13. gr., gjald/m³ í húsi – 136 kr.
G) Stöðuleyfi fyrir gáma og aðra lausamuni skv. gr. 2.6.1. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 til eins árs – 63.200 kr.
H) Tilkynningarskyldar framkvæmdir, yfirferð og afgreiðslugjald – 25.000 kr.
3. gr.
Byggingarfulltrúi áætlar fjölda stöðuúttekta skv. D-lið 2. gr. áður en byggingarleyfi er gefið út.
4. gr.
Fyrir yfirferð aðal-, sér- og byggingaruppdrátta auk greinargerða skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010:
A) Vegna einbýlishúsa:
A1) aðaluppdrættir – 73.700 kr.
A2) séruppdrættir – 73.700 kr.
B) Vegna par- og raðhúsa, pr. íbúð:
B1) aðaluppdrættir 42.700 – kr.
B2) séruppdrættir 42.700 – kr.
C) Vegna fjölbýlishúsa:
C1) aðaluppdrættir fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð – 19.800 kr.
C2) séruppdrættir fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð – 19.800 kr.
C3) aðaluppdrættir fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð – 8.600 kr.
C4) séruppdrættir fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð – 8.600 kr.
C5) aðaluppdrættir fyrir 20 íbúðir og fleiri, pr. íbúð – 5.000 kr.
C6) séruppdrættir fyrir 20 íbúðir og fleiri, pr. íbúð – 5.000 kr.
D) Vegna annars húsnæðis eftir stærð, þ.m.t. atvinnu- og gripahús:
D1) aðaluppdrættir fyrir húsnæði allt að 2.000 m² brúttó – 136.500 kr.
D2) séruppdrættir fyrir húsnæði allt að 2.000 m² brúttó – 136.500 kr.
D3) aðaluppdrættir fyrir húsnæði milli 2.000 – 10.000 m² brúttó – 149.500 kr.
D4) séruppdrættir fyrir húsnæði milli 2.000 – 10.000 m² brúttó – 149.500 kr.
D5) aðaluppdrættir fyrir húsnæði stærra en 10.000 m² brúttó – 188.600 kr.
D6) séruppdrættir fyrir húsnæði stærra en 10.000 m² brúttó – 188.600 kr.
E) Minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa. o.fl., aðal-/séruppdrættir – 32.500 kr.
F) Breyting á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis, aðal-/séruppdrættir – 51.100 kr.
G) Breyting á innra skipulagi íbúðarhúsnæðis, útlitsbreyting, svalaskýli, lóð o.fl., aðal-/séruppdrættir – 19.700 kr.
H) Aðkeypt skoðun og yfirferð á uppdráttum og greinargerðum skv. samningi/ reikningi
5. gr.
Fyrir neðangreind vottorð, skjalagerð og yfirlestur ýmiss konar skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010:
A) Lokaúttektarvottorð, sbr. 36. gr. – 15.800 kr.
B) Fokheldisvottorð, sbr. 55. gr. – 15.800 kr.
C) Stöðuvottorð, sbr. 55. gr. – 15.800 kr.
D) Stofnskjalagerð, nýskráning, hver lóð í dreifbýli – 45.600 kr.
E) Stofnskjalagerð, nýskráning, hver lóð í þéttbýli – 26.100 kr.
F) Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, stór – 46.100 kr.
G) Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, lítil – 23.100 kr.
H) Samrunaskjalagerð (hver lóð) – 34.800 kr.
I) Útsetning húss og lóðar, með tékkmælingu – 138.400 kr.
J) Útsetning húss og lóðar, einföld útsetning – 83.500 kr.
K) Nafnabreyting, lands eða lóðar – 23.100 kr.
L) Skjalagerð/lóðarleigusamningar (hver lóð) – 26.100 kr.
M) Stofnun lóðar í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands skv. gjaldskrá HMS
N) Aðkeypt vinna við gerð og breytingar, s.s. lóða og hæðarblöð skv. samningi/ reikningi
O) Skráning viðbótar fastanúmers eða fjölgun á íbúðum, skv. samningi og samþykkt bæjarráðs Mosfellsbæjar.
6. gr.
Fyrir hverja skoðun/skoðunarskýrslu byggingarfulltrúa á þegar byggðum íbúðum skal innheimta skoðunargjald sem hér segir:
A) Skoðunargjald pr. íbúð í fjöleignarhúsi – 25.400 kr.
B) Skoðunargjald fyrir einbýlis-, par- og raðhús. – 37.500 kr.
7. gr.
Vegna grenndarkynninga skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, framkvæmdaleyfa skv. 13. og 14. gr. og vegna deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, sbr. 2. mgr. 20. gr. og 2. mgr. 38. gr. sömu laga, skal innheimta gjöld sem hér segir:
Skipulagsnefnd innheimtir einnig afgreiðslu- og fyrirspurnargjald vegna fyrirtöku nýrra eða endurupptöku mála:
Afgreiðslu- og fyrirspurnargjald skipulagsnefndar – 15.800 kr.
A) Grenndarkynning:
A1) Sbr. 44. gr. á kynningu leyfisumsóknar – 51.200 kr.
B) Fyrir afhendingu grunn- og landupplýsinga fyrir skipulagsvinnu – 15.800 kr.
C) Vegna breytingar á aðalskipulagi, sbr. 2. mgr. 20. gr. og 36. gr.:
C1) Gerð tillögu að breytingu skv. samningi/ reikningi
C2) Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. – 185.200 kr.
C3) Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. – 108.900 kr.
D) Vegna deiliskipulags, sbr. 40. gr. og 43. gr.
D1) Umsýsla og kynning skipulagslýsingar – 85.500 kr.
D2) Gerð deiliskipulagstillögu eða breytingar skv. samningi/ reikningi
D3) Gerð tillögu að einföldum breytingum – 134.300 kr.
D4) Umsýslu- og kynningarkostnaður vegna nýs deiliskipulags – 185.200 kr.
D5) Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna breytinga skv. 1. mgr. 43. gr. – 142.400 kr.
D6) Umsýslu og kynningarkostnaður vegna breytinga skv. 2. mgr. 43. gr. – 85.600 kr.
D7) Fyrir afgreiðslu tillögu, sbr. 3. mgr. 44. gr. og 3. mgr. 43. gr. – 30.700 kr.
E) Vegna framkvæmdaleyfa:
E1) Leyfisgjald vegna framkvæmdaleyfis skv. 14. gr. – 127.000 kr.
E2) Leyfisgjald vegna annarra framkvæmdaleyfa – 85.600 kr.
E3) Eftirlit umfram eina ferð sem er innifalin í E1 og E2; pr. ferð – 30.700 kr.
8. gr.
Vegna beiðni um yfirborðs og umhverfisbreytinga þar sem vikið er frá auglýstu deiliskipulagi, skal kostnaðarþátttaka umsækjanda samsvara framkvæmdakostnaði sem hér segir:
A) Sögun malbik/steypa (fyrir hvern metra) – 2.700 kr.
B) Endurnýjun steyptrar stéttar 10 cm (fyrir hvern fermetra) – 12.000 kr.
C) Steypt stétt fjarlægð og endursteypt 15 cm (fyrir hvern fermetra) – 19.900 kr.
D) Malbikun götu (fyrir hvern fermetra) – 12.000 kr.
E) Kantur endursteyptur (fyrir hvern metra) – 10.700 kr.
F) Færsla á ljósastaur (fyrir hvern staur) – 232.200 kr.
G) Færsla á rafmagnskassa (fyrir hvern kassa) – 437.600 kr.
Innheimtur verður sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni kostnaður vegna hönnunar gatna, gerðar mæli-, lóðar- og hæðarblaða auk aðkeyptrar vinnu og efniskostnaðar við breytingu á lögnum og götusniði.
9. gr.
Tímagjald starfsmanns á umhverfissviði vegna annarra/frekari verka – 15.800 kr.
10. gr.
Mosfellsbær mun annast innheimtu allra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari skv. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11. gr.
Gjalddagi gjalda skv. 2., 4. og 5. gr. gjaldskrár þessarar er áður en byggingarleyfi er útgefið, sbr. ákvæði 53. gr. laga um mannvirki. Gjalddagi gjalda skv. 7. gr. gjaldskrárinnar er sem hér segir:
A) Samkvæmt lið A: Fyrir kynningu.
B) Samkvæmt lið B: Eftir afhendingu gagna.
C) Samkvæmt lið C: Við samþykktir og afgreiðslur.
D) Samkvæmt lið D: Við samþykktir og afgreiðslur.
E) Samkvæmt lið E: Við útgáfu leyfis.
12. gr.
Gjöld vegna áfangaúttekta skal endurgreiða komi ekki til verkframkvæmda á gildistíma byggingarleyfis.
13. gr.
Virðisaukaskattur leggst ekki á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
14. gr.
Gjöld innheimt samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til greiðslu sannanlegs kostnaðar við einstaka verkþætti gjaldskrárinnar.
15. gr.
Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, var samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 817. fundi þann 7. desember 2022 með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 51. gr. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1727/2021.
Mosfellsbæ, 8. desember 2022.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
1. gr. Vatnsgjald
Af öllum fasteignum í Mosfellsbæ sem tengdar eru Vatnsveitu Mosfellsbæjar, skal greiða vatnsgjald árlega til Mosfellsbæjar, nema sérstaklega sé um annað samið.
Almennt vatnsgjald skal vera 0,065% af fasteignamati mannvirkja og lóða. Gjalddagar almenns vatnsgjalds eru þeir sömu og bæjarstjórn ákveður hverju sinni vegna álagðra fasteignagjalda í sveitarfélaginu.
2. gr. Heimæðagjöld
Verð hér að neðan miðast við að umsækjandi hafi lagt ídráttarrör á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitu við lóðarmörk að inntaksstað í húsi sem Veitur í Mosfellsbæ hafa samþykkt. Óski umsækjandi eftir því að Vatnsveita Mosfellsbæjar sjái um jarðvinnu vegna heimlagna, bætist sá kostnaður við tengigjald vatnsveitunnar.
Gjald vegna heimæða skal vera sem hér segir.
- 32 mm rör = 221.181 kr. án vsk.
- 40 mm rör = 294.613 kr. án vsk.
- 50 mm rör = 423.939 kr. án vsk.
- 63 mm rör = 811.025 kr. án vsk.
- 75 mm rör = 1.160.318 kr. án vsk.
- 90 mm rör = 1.441.816 kr. án vsk.
- 110 mm rör = 1.605.574 kr. án vsk.
- 140 mm rör = 1.800.690 kr. án vsk.
- 180 mm rör = 2.161.837 kr. án vsk.
Stærð heimæðar er ákvörðuð af Vatnsveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupenda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar er styttri en 20 metrar gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 20 metra er heimilt að innheimta 1% lengdargjald af heimæðagjöldum viðkomandi málstærðar.
Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi, fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af tengigjaldi viðkomandi málstærðar. Heimæðar stærri en 110 mm (4“) eru gjaldfærðar til samræmis við raunkostnað. Við mat á umsóknum er tekið mið af flutningsgetu aðliggjandi götu- eða stofnæðar.
Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengipunkti greiðir hann heimæðagjöld að nýju til samræmis við málstærð heimæðar.
Skýringar:
Almennt verð heimæða gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verð gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimæðina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélagsins t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna.
Álag vegna vatnsúðaheimæða er kr. 4.292.568 fyrir hverja heimæðarlögn.
Gjald vegna tengingar vinnuvatns er kr. 120.957 án vsk.
Skýringar:
Vinnuvatn er aðgangur að vatni til byggingaframkvæmda og/eða skammtímanotkunar og uppfærist skv. byggingarvísitölu. Gjaldskrárverð gildir þegar tengt er við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk. Vinnuvatnstenging er aflögð um leið og heimæð er tengd inn í hús samkvæmt umsókn, en þá er ekki greitt sérstaklega fyrir aftengingu. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu en 50 mm er tenging gjaldfærð til samræmis við raunkostnað.
3. gr. Mælagjöld
Gjald vegna rennslismæla skal vera sem hér segir, verð án vsk.
Stærð mælis og verð kr./dag án vsk.:
- 15 mm = 40,18 kr./dag án vsk.
- 20 mm = 44,16 kr./dag án vsk.
- 25 mm = 57,04 kr./dag án vsk.
- 32 mm = 63,02 kr./dag án vsk.
- 40 mm = 80,06 kr./dag án vsk.
- 50 mm = 94,01 kr./dag án vsk.
- 80 mm = 253,24 kr./dag án vsk.
- 100 mm = 258,44 kr./dag án vsk.
4. gr. Graftrargjöld
Gjald er lagt á vegna ídráttarröra, fleygunar og sprenginga.
Vanti ídráttarrör eða ídráttarrör reynist ónothæf, greiðist kr. 10.581 án vsk. pr. lengdarmetra í heimlagnaskurði.
Reynist nauðsynlegt að fleyga eða sprengja klöpp eða að frost er í jörðu bætist eftirfarandi kostnaður við skurðgröft, sbr. 1. mgr., sem innheimtist eftir á.
- Klaki/klöpp: Dýpt cm. < 30 = 3.984 kr./lengdarmetra/án vsk.
- Klaki/klöpp: Dýpt cm. > 30 = 8.045 kr./lengdarmetra/án vsk.
Vatnsveitan gefur upp innmælingu og/eða staðsetur heimæðarenda við lóðarmörk.
5. gr. Notkunargjald
Notkunargjald er kr. 51,23 pr. m³ án vsk.
Skýringar:
Þar sem vatn fá vatnsveitu er notað til atvinnustarfsemi eða annars en venjulegra heimilisþarfa er auk vatnsgjalds innheimt notkunargjald skv. 7. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004. Heimilt er að innheimta notkunargjald samkvæmt áætlun ef ekki er unnt að koma við mælingu.
6. gr. Ábyrgð á greiðslu gjalda
Vatnsgjald og heimæðargjald greiðist af hús- og íbúðareiganda og lóðarréttarhafa og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Gjöldin eru tryggð með lögveðsrétti í fasteigninni næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Notkunargjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum má taka fjárnámi.
7. gr. Gildistaka
Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 817. fundi þann 7. desember 2022 er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1291/2019.
Mosfellsbæ, 8. desember 2022.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
B deild – Útgáfud.: 10. janúar 2023.
Íþróttir og tómstundir
Þjónusta | Verð |
---|---|
Skírteini | |
Íbúar og starfsfólk Mosfellsbæjar, börn og unglingar undir 18 ára aldri, 67 ára og eldri og öryrkjar greiða ekki fyrir skírteini. | |
Árgjald 18 - 66 ára | 2.700 kr. |
Glatað skírteini | 150 kr. |
Vanskil | |
Dagsektir vegna vanskila á safnefni | 30 kr. á dag |
Ljósritun og útprentun | |
Ljósrit | 30 kr. á blað |
Blöð til útprentunar | 30 kr. á blað |
Ljósrit A-3 | 60 kr. á blað |
Tölvunotkun | |
Aðgangur að tölvum safnsins og þráðlausu neti | Ókeypis |
Gjaldskrá var samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar og gildir frá 01.01.2023.
Þjónusta | Verð |
---|---|
Fullorðnir | 1.000 |
Fullorðnir: 10 miða áfylling á kort* | 4.500 |
Fullorðnir: árskort | 35.000 |
Börn 0 - 10 ára* | Frítt |
Börn og unglingar 11 - 17 ára* | 175 |
Börn og unglingar 11 - 17 ára: 10 miðar* | 1.500 |
Börn og unglingar 11 - 17 ára: 30 miðar* | 2.400 |
Öryrkjar* | Frítt |
Ellilífeyrisþegar* | Frítt |
Moskort - áfyllingarkort | 700 |
Leiga | |
Handklæði | 900 |
Sundföt | 900 |
Innri leiga á sal (stór salur) | 10.565 |
Innri leiga á gervigrasvelli 1/1 | 19.611 |
- Börn byrja að greiða barnagjald 1. júní árið sem þau verða 10 ára.
- Börn geta farið ein í sund án fylgdarmanns frá 1. júní, árið sem þau verða 10 ára.
- Börn og unglingar 11-15 ára í grunnskólum Mosfellsbæjar geta í afgreiðslu sundlaugar sótt um endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum með áfyllingu á Moskort sem kostar kr. 700 kr. Gildistími korts er til 31. desember 2023 en þó ekki lengur en barn er í grunnskóla.
- Ungmenni greiða fullorðinsgjald frá 1. júní árið sem þau verða 18 ára.
- Öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun skírteinis gefið út af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra. Einnig eru þeir ekki gjaldskyldir sem framvísa skírteini Sjúkratrygginga Íslands (grænu skírteini) vegna varanlegrar örorku, skírteini Blindrafélags (bláu skírteini) og umönnunarkorti (gulu skírteini) vegna sérstakrar umönnunar barns.
- Gjaldskylda fellur niður við 67 ára aldur og miðast við afmælisdag, framvísa verður persónuskírteini.
- Gildistími áfyllinga á Moskort er 2 ár.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Nám | Skólagjöld |
---|---|
Hljóðfæradeildir, grunn- og miðnám | |
Fullt nám 1/1 - 2x30 mín (10 ára og eldri) | 123.765 |
Fullt nám 2/3 – 2x20 mín (10 ára og yngri) | 93.027 |
Hálft nám 1/2 - 1x30 mín | 78.188 |
Fullt nám með undirleik (15 mín á viku miðnám*) | 143.880 |
Hljóðfæradeildir, framhaldsnám | |
Fullt nám 1/1 án undirleiks | 135.550 |
Fullt nám 1/1 með undirleik (30 mín. á viku) | 153.694 |
Hálft nám1/2 án undirleiks | 85.919 |
Söngdeild, grunn og miðnám | |
Fullt nám 1/1 án undirleiks (grunnnám) | 123.765 |
Fullt nám 1/1 án undirleiks (grunnnám) | 140.610 |
Fullt nám 1/1 með undirleik (30 mín. miðnám) | 164.356 |
Hálft nám 1/2 án undirleiks (grunnnám) | 78.188 |
Söngdeild, framhaldsnám | |
Fullt nám 1/1 með undirleik (45 mín. framhaldsnám) | 192.930 |
Fullt nám 1/1 án undirleiks (framhaldsnám) | 130.337 |
Annað nám | |
Suzukinám 0.75 (1x30 mín og hóptími) | 93.027 |
Suzukinám fullt 1/1 (2x30 mín) | 123.765 |
Regnbogastrengir 1/1 (3x15 mín og hóptími) | 123.765 |
Söngur ungdeild | 93.027 |
Forskóli (1x45 mín) | 47.602 |
Tónfræðigreinar eingöngu | 44.331 |
Annað | |
Hljóðfæraleiga | 12.595 |
*Hljóðfæranemandi í miðnámi á þess kost að fá fastan meðleik, það er ákveðið í samráði við kennara.
Í þeim tilvikum sem systkin yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur fyrir eldra systkin eða eldri systkin. Systkinaafsláttur skal nema 20% fyrir annað systkin af næstdýrasta námi og 40% fyrir þriðja systkin af þriðja dýrasta námi.
Stundi nemandi nám á tvö hljóðfæri/söng þá er 20% afsláttur af 2. hljóðfæri.
Hljóðfæraleiga greiðist í einu lagi við upphaf náms að hausti og skal samningur gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra.
Umsókn skal staðfesta með greiðslu fyrsta hluta skólagjalds (kr. 12.000) eftir að nemandi hefur fengið jákvætt svar um innritun í skólann. Gjalddagar skólagjalda skulu vera 1. júní eða við innritun sé innritun síðar, 1. október, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. mars.
Innheimta skólagjalda er í höndum bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar.
Hætti nemandi námi á miðri önn ber honum að greiða fullt gjald fyrir þá önn sem hafin er.
Annarskil haustannar og vorannar eru um áramót.
Gjaldskrá þessi gildir fyrir skólaárið 2023 – 2024.
Gjaldskrá þessi gildir frá 1. ágúst 2023.
Þátttaka | Gjald |
---|---|
Hver önn | 19.620 |
Heill vetur | 39.240 |
Blokkflauta / forskóli | 16.110 |
Lánsgjald fyrir hljóðfæri | |
Fyrir hvora önn, pr. hljóðfæri | 2.507 |
Gildir frá 1. ágúst 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2023.
Menntun og uppeldismál
Dvalartími klst. | Heildargreiðsla | Almenn niðurgreiðsla | Gjaldskrá forsjáraðila |
---|---|---|---|
Almennt | |||
4,0 | 77.068 | 64.992 | 12.076 |
4,5 | 86.827 | 65.606 | 20.221 |
5,0 | 94.585 | 73.141 | 21.444 |
5,5 | 103.344 | 80.676 | 22.667 |
6,0 | 112.102 | 98.211 | 23.891 |
6,5 | 120.861 | 95.747 | 25.114 |
7,0 | 129.619 | 103.282 | 26.337 |
7,5 | 138.378 | 110.817 | 27.561 |
8,0 | 147.136 | 118.352 | 28.784 |
8,5 | 155.895 | 124.664 | 31.231 |
9,0 | 164.653 | 128.529 | 36.124 |
Viðbótarniðurgreiðsla gildir einungis vegna greiðslu fyrir 8 tíma vistun eða lengri | |||
20% viðbótarniðurgreiðsla fyrir 8 tíma vistun eða lengri | |||
20% viðbótarniðurgreiðsla | Gjaldskrá forsjáraðila | ||
8,0 | 147.136 | 122.767 | 24.869 |
8,5 | 155.895 | 129.068 | 26.827 |
9,0 | 164.653 | 133.912 | 30.741 |
40% viðbótarniðurgreiðsla fyrir 8 tíma vistun eða lengri | |||
40% viðbótarniðurgreiðsla | Gjaldskrá forsjáraðila | ||
8,0 | 147.136 | 126.681 | 20.955 |
8,5 | 155.895 | 133.472 | 22.423 |
9,0 | 164.653 | 139.294 | 25.359 |
Vinsamlega athugið að hér er um hámarksgjaldskrá að ræða og er dagforeldrum heimilt að innheimta lægra gjald.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Dvalartími klst. | Heildargreiðsla | Almenn niðurgreiðsla | Gjaldskrá forsjáraðila |
---|---|---|---|
Almennt | |||
4,0 | 77.068 | 54.562 | 22.506 |
4,5 | 85.827 | 59.959 | 25.868 |
5,0 | 94.585 | 65.928 | 28.657 |
5,5 | 103.344 | 71.897 | 31.447 |
6,0 | 112.102 | 77.865 | 34.237 |
6,5 | 120.861 | 83.834 | 37.026 |
7,0 | 129.619 | 89.803 | 39.816 |
7,5 | 138.378 | 95.772 | 42.605 |
8,0 | 147.136 | 101.741 | 45.395 |
8,5 | 155.895 | 104.920 | 50.974 |
9,0 | 164.653 | 102.520 | 62.133 |
Viðbótarniðurgreiðsla gildir einungis vegna greiðslu fyrir 8 tíma vistun eða lengri | |||
20% viðbótarniðurgreiðsla fyrir 8 tíma vistun eða lengri | |||
20% viðbótarniðurgreiðsla | Gjaldskrá forsjáraðila | ||
8,0 | 147.136 | 110.820 | 36.316 |
8,5 | 155.895 | 115.115 | 40.779 |
9,0 | 164.653 | 114.947 | 49.706 |
40% viðbótarniðurgreiðsla fyrir 8 tíma vistun eða lengri | |||
40% viðbótarniðurgreiðsla | Gjaldskrá forsjáraðila | ||
8,0 | 147.136 | 119.899 | 27.237 |
8,5 | 155.895 | 125.310 | 30.584 |
9,0 | 164.653 | 127.373 | 37.280 |
Vinsamlega athugið að hér er um hámarksgjaldskrá að ræða og er dagforeldrum heimilt að innheimta lægra gjald.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Dvalartímar (1 klst. á viku) | Gjald per viku | Gjald per mánuð (m.v. 4 vikur) |
---|---|---|
5 | 1.890 | 7.560 |
8 | 3.024 | 12.096 |
10 | 3.780 | 15.120 |
12 | 4.536 | 18.144 |
15 | 5.670 | 22.680 |
20 | 7.560 | 30.240 |
1. gr.
Gjald fyrir vistun í frístundaseli fer eftir fjölda skráðra klukkustunda. Gjald lækkar ekki þrátt fyrir skerta daga eða ef börn nýta ekki þjónustu s.s. vegna veikinda eða leyfis.
2. gr.
Grunngjald fyrir hverja klukkustund í frístundaseljum er 378 kr. Greiðslur grundvallast á grunngjaldi fyrir hverja klst. en lágmarksfjöldi vistunarstunda á viku eru 4 tímar, sjá nánar samþykkt um frístundasel.
3. gr.
Hægt er að sækja um systkinaafslátt samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar þar um, inn á umsókn um frístundasel.
4. gr.
Sérstakt gjald er tekið fyrir skráða viðbótarvistun, sjá nánar gjaldskrá um viðbótarvistun.
5. gr.
Breytingaóskir þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar í gegnum þjónustugátt og taka gildi næstu mánaðarmót á eftir.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Grunngjald fyrir hvern dag í viðbótarvistun í frístundaseljum er 3.218 kr.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
1. gr.
Gjaldskrá fyrir ávaxtabita í grunnskólum Mosfellsbæjar er sem hér segir: Ávaxtabiti 132 kr. á dag.
2. gr.
Greitt er áskriftargjald fyrir einn mánuð í senn og fer mánaðarverð eftir fjölda nemendadaga.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
1. gr.
Gjaldskrá fyrir mötuneyti grunnskóla Mosfellsbæjar er sem hér segir: Hver máltíð 460 kr.
2. gr.
Greitt er áskriftargjald fyrir einn mánuð í senn og fer mánaðarverð eftir fjölda nemendadaga, sjá nánar í reglum um mötuneytisáskrift.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Dvalartími klst. | Verð á dag | Verð á mánuði |
---|---|---|
4 | 64 | 1.424 |
6 | 96 | 2.136 |
8 | 128 | 2.846 |
Einingaverð: 32 kr.
Gildir frá 1. ágúst 2022.
Samþykkt á 795. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 8. desember 2021.
Dvalartími klst. | Vistunargjald | Fæði | Síðdegishressing | Samtals |
---|---|---|---|---|
Almenn leikskólagjöld | ||||
4,0 | 9.787 | 2.289* | 0 | 12.076 |
4,5 | 11.010 | 6.922 | 2.289 | 20.221 |
5,0 | 12.233 | 6.922 | 2.289 | 21.444 |
5,5 | 13.457 | 6.922 | 2.289 | 22.667 |
6,0 | 14.680 | 6.922 | 2.289 | 23.891 |
6,5 | 15.903 | 6.922 | 2.289 | 25.114 |
7,0 | 17.127 | 6.922 | 2.289 | 26.337 |
7,5 | 18.350 | 6.922 | 2.289 | 27.561 |
8,0 | 19.573 | 6.922 | 2.289 | 28.784 |
8,5 | 22.020 | 6.922 | 2.289 | 31.231 |
9,0 | 26.913 | 6.922 | 2.289 | 36.124 |
Leikskólagjöld niðurgreidd um 20% | ||||
8,0 | 15.659 | 6.922 | 2.289 | 24.869 |
8,5 | 17.616 | 6.922 | 2.289 | 26.827 |
9,0 | 21.531 | 6.922 | 2.289 | 30.741 |
Leikskólagjöld niðurgreidd um 40% | ||||
8,0 | 11.744 | 6.922 | 2.289 | 20.955 |
8,5 | 13.212 | 6.922 | 2.289 | 22.423 |
9,0 | 16.148 | 6.922 | 2.289 | 25.359 |
Sundurliðun leikskólagjalda barna eldri en 12 mánaða.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Dvalartími klst. | Vistunargjald | Fæði | Síðdegishressing | Samtals |
---|---|---|---|---|
Almenn leikskólagjöld | ||||
4,0 | 20.217 | 2.289* | 0 | 22.506 |
4,5 | 16.657 | 6.922 | 2.289 | 25.868 |
5,0 | 19.446 | 6.922 | 2.289 | 28.657 |
5,5 | 22.236 | 6.922 | 2.289 | 31.447 |
6,0 | 25.026 | 6.922 | 2.289 | 34.237 |
6,5 | 27.815 | 6.922 | 2.289 | 37.026 |
7,0 | 30.605 | 6.922 | 2.289 | 39.816 |
7,5 | 33.394 | 6.922 | 2.289 | 42.605 |
8,0 | 36.184 | 6.922 | 2.289 | 45.395 |
8,5 | 41.763 | 6.922 | 2.289 | 50.974 |
9,0 | 52.922 | 6.922 | 2.289 | 62.133 |
Leikskólagjöld niðurgreidd um 20% | ||||
8,0 | 27.105 | 6.922 | 2.289 | 36.316 |
8,5 | 31.568 | 6.922 | 2.289 | 40.779 |
9,0 | 40.495 | 6.922 | 2.289 | 49.706 |
Leikskólagjöld niðurgreidd um 40% | ||||
8,0 | 18.026 | 6.922 | 2.289 | 27.237 |
8,5 | 21.373 | 6.922 | 2.289 | 30.584 |
9,0 | 28.069 | 6.922 | 2.289 | 37.280 |
Sundurliðun leikskólagjalda barna yngri en 12 mánaða.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Hjúskaparstaða | 20% | 40% |
---|---|---|
Einstæðir | 565.921 | 471.602 |
Í sambúð | 789.449 | 660.242 |
Bæði gjöld til leikskóla og dagforeldra eru niðurgreidd og koma þær niðurgreiðslur fram í gjaldskrám.
Samkvæmt samþykkt um niðurgreiðslur er hægt að sækja um viðbótarniðurgreiðslur á grundvelli tekna og er þá miðað við brúttótekjur síðastliðinna þriggja mánaða.
Niðurgreiðslur eru annars vegar 40% af almennu niðurgreiddu gjaldi og hins vegar 20%.
Niðurgreiðslur eru ekki veittar af fæði.
Til þess að öðlast rétt til niðurgreiðslu og viðbótarniðurgreiðslu er horft til tekna foreldra, bæði einstaklinga og foreldra í sambúð, sem grundvallast á staðfestu staðgreiðsluyfirliti síðustu þriggja mánaða.
Foreldrar eða forráðamenn sem óska eftir niðurgreiðslum skulu sækja um þær á þjónustugátt Mosfellsbæjar fyrir 20. dag mánaðar og skulu umbeðin gögn fylgja umsókn áður en hún er tekin til efnislegrar afgreiðslu. Niðurgreiðslurnar taka þá gildi næsta mánuð eftir að umsókn er afgreidd. Umsóknir eru ekki afturvirkar og endurnýja þarf þær árlega.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Heildar dvalartími á viku | Vistunargjald |
---|---|
Flokkur 2 - 12 mánaða og eldri* | |
20,0 | 12.076 |
22,5 | 20.221 |
25,0 | 21.444 |
27,5 | 22.667 |
30,0 | 23.891 |
32,5 | 25.114 |
35,0 | 26.337 |
37,5 | 27.561 |
40,0 | 28.784 |
42,5 | 31.231 |
45,0 | 36.124 |
20% afsláttur á grundvelli tekna | |
40 | 24.869 |
42,5 | 26.827 |
45,0 | 30.741 |
40% afsláttur á grundvelli tekna | |
40,0 | 20.955 |
42,5 | 22.423 |
45,0 | 25.359 |
Flokkur 1 - 12 mánaða og yngri* | |
20,0 | 22.506 |
22,5 | 25.868 |
25,0 | 28.657 |
27,5 | 31.447 |
30,0 | 34.237 |
32,5 | 37.026 |
35,0 | 39.816 |
37,5 | 42.605 |
40,0 | 45.395 |
42,5 | 50.974 |
45,0 | 62.133 |
20% afsláttur á grundvelli tekna | |
40,0 | 36.316 |
42,5 | 40.779 |
45,0 | 49.706 |
40% afsláttur á grundvelli tekna | |
40,0 | 27.237 |
42,5 | 30.584 |
45,0 | 37.280 |
Skilyrði fyrir framlagi Mosfellsbæjar til dagforeldra og sjálfstætt starfandi leikskóla er að gerður sé samningur við Mosfellsbæ.
*Greitt er skv. flokki 2, mánaðarmótin eftir að barnið verður 12 mánaða.
Gildir frá 1. janúar 2023.
Samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Stjórnsýsla og skattar
Umhverfi og samgöngur
Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir: | ||
---|---|---|
Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Parhús, tvíbýlishús | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Raðhús, keðjuhús | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Fjölbýlishús | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Verslunar-, þjónustuhúsnæði o.fl. | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Iðnaðarhúsnæði | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Hesthús (að undanskildum stækkunum allt að 20 m2*) | 15% | kr. 41.390 pr. m² |
Hús til landbúnaðarafnota | 7,50% | kr. 20.695 pr. m² |
Bílakjallarar | 3,75% | kr. 10.347 pr. m² |
Færanlegar kennslustofur | 1% | kr. 2.759 pr. m² |
Gjaldskrá gildir frá 1. janúar 2023.
Framangreindar fjárhæðir taka breytingum tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhúss.
Gjaldskrá byggð á samþykkt um gatnagerðargjöld á deiliskipulögðum svæðum í Mosfellsbæ frá 17. maí 2017.
Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar vegna leyfisveitinga, eftirlits og annarrar gjaldskyldrar starfsemi.
Matvælaeftirlit
1. gr.
Fyrir gjaldskylda starfsemi sem háð er leyfum eða eftirliti heilbrigðisnefndar samkvæmt lögum um matvæli nr. 93/1995 ber fyrirtækjum, einstaklingum og lögaðilum að greiða gjöld í samræmi við gjaldskrá þessa og fer um innheimtu samkvæmt henni.
2. gr.
Gjald fyrir reglubundið eftirlit með fyrirtækjum sem hafa verið áhættuflokkuð og falla undir opinbert eftirlit heilbrigðisnefnda fer samkvæmt áhættu- og frammistöðuflokkunarkerfi samkvæmt lögum um matvæli sbr. lagabreytingu nr. 33/2018. Gjald fyrir reglubundið eftirlit með fyrirtækjum sem ekki hafa verið áhættuflokkuð nemur fastri fjárhæð í samræmi við viðauka með gjaldskrá þessari. Greiða skal fyrir hverja eftirlitsheimsókn.
Hollustuhættir og mengunarvarnir
3. gr.
Fyrir gjaldskylda starfsemi sem háð er leyfum eða eftirliti samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari. Um álagningu eftirlitsgjalda fer samkvæmt viðauka og 11 og 12. gr. gjaldskrár þessarar.
4. gr. Tóbaksvarnir
Fyrir gjaldskylda starfsemi sem heilbrigðisnefnd ber að hafa eftirlit hjá með vísun til 8. gr. laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 ber fyrirtækjum, einstaklingum og lögaðilum sem leyfi hafa til að selja tóbak í smásölu að greiða gjöld í samræmi við gjaldskrá þessa. Um álagningu eftirlitsgjalda fer samkvæmt viðauka og 11. gr. og 12. gr. gjaldskrár þessarar.
5. gr. Um meðhöndlun úrgangs
Vegna eftirlits sbr. 9. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, og eftirlits með atvinnurekstri sem heilbrigðisnefndir gefa út starfsleyfi fyrir, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga er heimilt að innheimta gjald samkvæmt 9. og 10. gr. gjaldskrár þessarar.
6. gr.
Tímagjald kr. 18.500
Sýnatökugjald samkvæmt eftirlitsáætlun vegna mælinga örvera og einfaldra eðlisfræðilegra mælinga. kr. 19.000
7. gr.
Af leyfisskyldri starfsemi sbr. 1., 2., og 3. gr. gjaldskrár þessarar er heimilt að innheimta gjald fyrir leyfi eins og hér segir:
Endurútgáfa eða endurnýjun leyfis: eitt og hálft tímagjald, auk auglýsingakostnaðar ef við á
Nýtt leyfi: tvöfalt tímagjald, auk eftirlitsgjalds og auglýsingakostnaðar ef við á
Önnur leyfi: Leyfisgjald tvöfalt tímagjald og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar, úttektar og frágangs ásamt auglýsingakostnaði ef við á.
8. gr.
Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum skal greiða tvöfalt tímagjald.
9. gr.
Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og/eða sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning.
10. gr.
Vegna beitingar þvingunarúrræða skv. XVII. kafla laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli og XII. kafla laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs skal innheimta fyrir kostnaði eins og um aukin eftirlitsverkefni sé að ræða. Heimilt er að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef tilmæli um framkvæmd eru vanrækt. Útlagður kostnaður er þá greiddur til bráðabirgða af heilbrigðisnefnd, þar sem hún fer með eftirlit.
Útlagður kostnaður af framkvæmd, vegna vinnu eftirlits við framkvæmd og við innheimtu kostnaðar innheimtist hjá viðkomandi.
11. gr.
Gjaldskrá þessi er samin með heimild í 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Aðildarsveitarfélögin annast innheimtu árlegra eftirlitsgjalda. Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innheimtir önnur gjöld s.s. fyrir leyfi, vottorð, matvælaeftirlit, tóbakseftirlit og aukin eftirlitsverkefni. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
12. gr.
Gjalddagi árlegra eftirlitsgjalda samkvæmt 2. og 3. gr. er 1. mars og eindagi 1. apríl ár hvert en annarra gjalda er útgáfudagur reiknings og eindagi 14 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.
13. gr.
Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á einum og sama stað, skal eftir eðli og umfangi starfseminnar leggja saman eftirlitsgjöld vegna viðeigandi starfsemi. Heimilt er þó að innheimta eitt árlegt eftirlitsgjald, þá í þeim flokki sem hæstur er ef aukning umfangs í eftirliti er óveruleg.
14. gr.
Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins.
15. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Garðabæjar 21. október 2021, bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar 12. janúar 2022, bæjarstjórn Kópavogsbæjar 14. desember 2021, bæjarstjórn Mosfellsbæjar 12. janúar 2022 og bæjarstjórn Seltjarnarness 20. janúar 2022, með vísun til ákvæða 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, 21. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1371/2020 fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi og gjaldskrá nr.1270/2020 fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis.
Garðabæ 20. janúar 2022
F.h. heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness,
Hörður Þorsteinsson
framkvæmdastjóri
VIÐAUKI
Heiti atvinnugreinar | Eftirlits- og sýnagjald kr. |
Aksturíþróttasvæði og/eða aksturæfingabraut | 55.500 |
Alifuglarækt < 40.000 stæði | 50.875 |
Alifuglasláturhús | 148.000 |
Apótek | 37.000 |
Áfengisverslun og heildverslun | 13.875 |
Bakarí og veitingasala | 157.750 |
Bakarí, brauðgerð, framleiðsla á kökum, lítil | 83.500 |
Bakarí, framleiðsla á brauði, sætabrauði og kökum | 120.750 |
Bensínstöð – sjálfvirk | 92.500 |
Bensínstöð – þjónustustöð | 120.250 |
Bílgrein – bifreiðasprautun | 55.500 |
Bílgrein – hjólbarðaverkstæði | 18.500 |
Bílgrein – réttingaverkstæði | 27.750 |
Bílgrein – ryðvörn o.þ.h. | 92.500 |
Bílgrein – smurstöð, þvotta- og bónstöð | 55.500 |
Bílgrein o.fl. verkstæði fyrir þungavinnutæki o.þ.h. | 111.000 |
Bílgrein o.fl. – verkstæði fyrirtækis | 46.250 |
Bílgrein o.fl. geymsla og viðgerðir, lítið umfang | 18.500 |
Bílgrein, bifreiða- vélaverkstæði, margþætt starfsemi | 97.125 |
Bílgrein, bifreiða- og vélaverkstæði | 55.500 |
Bílgrein, lítil bifreiða- og vélaverkstæði | 32.375 |
Bílgrein, lítil bónstöð, viðgerðaraðstaða o.þ.h. | 27.750 |
Bílgrein, margþætt starfsemi | 129.500 |
Bílgrein, partasala > 3 stæði | 55.500 |
Bílgrein, tækjageymsla með olíubirgðum | 55.500 |
Bjórgerð | 83.250 |
Brenna | 55.500 |
Daggæsla í heimahúsi með > 6 börn | 32.375 |
Dvalar- og hjúkrunarheimili, með mötuneyti | 167.000 |
Dvalarheimili á sviði þroskahömlunar og geðheilbrigðis | 32.375 |
Dýragarður | 27.750 |
Dýrahótel | 27.750 |
Dýralæknastofa | 27.750 |
Efnalaug og/eða þvottahús | 64.750 |
Eggjabú | 55.500 |
Endurhæfing, sundlaug | 120.750 |
Endurnýting úrgangs, flokkaðra efna | 101.750 |
Endurnýting úrgangs, niðurrif á ónýtum hlutum | 101.750 |
Fangageymsla | 23.125 |
Fangelsi | 74.000 |
Fiskbúð | 93.000 |
Fiskverkun – almenn | 92.500 |
Fiskverkun, sérhæfð s.s. þurrksvæði | 111.000 |
Flugvöllur með eldsneytisafgreiðslu | 55.500 |
Flutningur á seyru | 37.000 |
Fótaaðgerðarstofa | 27.750 |
Framleiðsla á byggingarefni úr steinsteypu | 92.500 |
Framleiðsla á umbúðaplasti | 64.750 |
Framleiðsla á vörum sem koma í snertingu við matvæli | 101.750 |
Framleiðsla dýrafóðurs | 37.000 |
Framleiðsla eða pökkun á korni | 111.500 |
Framleiðsla eimaðra áfengra drykkja | 111.500 |
Framleiðsla matvöru til matvælavinnslu | 111.500 |
Framleiðsla tilbúinnar steinsteypu | 101.750 |
Framleiðsla, átöppun neysluvatns | 130.000 |
Garðaúðun, aðstaða | 27.750 |
Gasbirgðastöð með > 100 m3 geymslurými (STP) | 83.250 |
Gámastöð | 27.750 |
Gisting – fjallaskáli. Flokkur II, III og IV | 23.125 |
Gisting – starfsmannabústaður, starfsmannabúðir | 27.750 |
Gisting, gistiheimili Flokkur II | 32.375 |
Gisting, hótel, veitingasala. Flokkur III og IV | 148.500 |
Gleriðnaður | 55.500 |
Grjótnám | 37.000 |
Gæludýraverslun | 27.750 |
Gæsluvöllur og/eða opin leiksvæði | 32.375 |
Hafnartankur, eldsneytisafgreiðsla | 37.000 |
Hárgreiðslu- og snyrtistofa | 27.750 |
Heilsugæslustöð | 27.750 |
Heilsuræktarstöð | 55.500 |
Heilsuræktarstöð, heitir pottar, baðstofa | 130.000 |
Heilsuræktarstöð, takmarkað umfang | 27.750 |
Heimili með félags- og/eða heilbrigðisþjónustu | 32.375 |
Hestahald, hesthúsahverfi | 13.875 |
Hestaleigur, reiðskólar, hestaíþróttir | 27.750 |
Hitaveita úr lághita | 24.420 |
Hreinlætisvörur, pökkun efnasambanda | 101.750 |
Húðflúrstofa | 55.500 |
Húðgötun | 27.750 |
Íþróttahús | 92.500 |
Íþróttahús, heitur pottur | 130.000 |
Íþróttahús, takmarkað umfang | 55.500 |
Íþróttavöllur | 55.500 |
Jarðboranir | 37.000 |
Jóga-stofa, heilun, fræðslustarfsemi o.fl. | 27.750 |
Kaffibrennsla | 41.625 |
Kaffihús án viðkvæmra veitinga | 27.750 |
Kertaverksmiðja | 13.875 |
Krá, kaffihús og dansstaðir o.þ.h. | 64.750 |
Krydd-, bragðefna, og/eða matvælaframl. og pökkun, | 92.500 |
Kæli- og frystigeymsla | 27.750 |
Leikhús | 27.750 |
Leikskóli (án mötuneytis) | 74.000 |
Leikskóli með mötuneyti | 92.500 |
Litun og bleiking <10 tonn á dag | 92.500 |
Loðdýrabú | 55.500 |
Læknahús, röntgen, aðgerðarstofa | 32.375 |
Læknastofa | 27.750 |
Malar- og sandnám; efnistaka á vatnsverndarsvæði | 129.500 |
Matjurtarækt fræ, baunaspírum eða þ.h. | 120.750 |
Matsölustaður, veitingastofa takmarkað umfang | 74.000 |
Matsölustaður, veitingahús | 120.750 |
Matvælaframleiðsla og pökkun (framl. tilbúinna rétta) | 130.000 |
Matvælaframleiðsla, takmarkað umfang | 46.250 |
Matvörudreifing frá vöruhótelum | 32.375 |
Matvörudreifing með vörugeymslu | 46.250 |
Matvöruverslun án vinnslu | 74.000 |
Matvöruverslun með vinnslu | 167.000 |
Matvöruverslun með vinnslu, takmarkað umfang | 93.000 |
Matvöruverslun minniháttar s.s. heildverslun | 37.000 |
Matvöruverslun, takmarkað umfang | 37.000 |
Málmiðn – sandblástur | 50.875 |
Málmiðn, blikksmíði með lítið umfang | 27.750 |
Málmiðn, spennaviðgerðir | 50.875 |
Málmiðn: vélsmíða- og vélaviðgerðaverkstæði | 41.625 |
Málmiðn; flotkví, skipviðgerðir og tengdur rekstur | 115.625 |
Málmiðn; járn-, ál- og stálsmiðja | 50.875 |
Málmiðn; kælitækjaþónusta, viðgerðir og nýsmíði | 50.875 |
Málmsteypa <20 tonn á dag | 50.875 |
Meðferð og húðun málma | 92.500 |
Meindýraeyðing | 13.875 |
Móttaka á úrgangi til endurnýtingar | 101.750 |
Móttaka brotamálms | 203.500 |
Mötuneyti með móttökueldhúsi | 83.750 |
Mötuneyti, fullbúið eldhús | 102.250 |
Mötuneyti, takmarkað umfang | 64.750 |
Nuddstofa | 25.438 |
Pappírsvöru- og pappakassaframleiðsla | 32.375 |
Plastiðnaður, framl. á umbúðarplasti vegna matvæla | 83.250 |
Plastiðnaður, trefjaplast | 50.875 |
Prentiðnaður | 30.063 |
Pökkun og framleiðsla á sápuefnum oþh. | 64.750 |
Rafgeymaverksmiðja og verkstæði | 30.063 |
Rafvélaverkstæði | 30.063 |
Reykhús, kjötiðn mjólkuriðn eða niðursuða 550/2018 | 41.625 |
Ræktun grænmetis og garðplöntuframleiðsla | 37.000 |
Samkomusalur með veitingum | 46.250 |
Samkomusalur s.s. sýningarsalir, kirkjur eða þ.h. | 23.125 |
Sjúkraþjálfun, endurhæfing o.þ.h. | 27.750 |
Skemmtistaður án matsölu | 27.750 |
Skíðaskáli, skíðasvæði, lyftur og viðgerðaraðstaða | 111.000 |
Skotvöllur | 46.250 |
Skólahúsnæði, dans-, öku- og tónlistarskóli o.þ.h. | 16.188 |
Skólahúsnæði, framhaldsskólastig | 27.750 |
Skólahúsnæði, framhaldsskólastig, mötuneyti | 139.250 |
Skólahúsnæði, framhaldsskólastig, verkmenntun | 139.250 |
Skólahúsnæði, grunnskóli án mötuneytis | 50.875 |
Skólahúsnæði, grunnskóli með mötuneyti | 139.250 |
Skólphreinsistöð > 10.000 pe. og afrennsli til strandsjávar | 92.500 |
Skólphreinsistöð, rotþró o.þ.h. | 74.000 |
Skólphreinsistöðvar aðrar | 46.250 |
Smáhýsi eða matsöluvagn (matvörudreifing) | 64.750 |
Smásala á innpökkuðu sælgæti o.þ.h. | 11.563 |
Snyrtistofa | 27.750 |
Snyrtivöruframleiðsla verksmiðja | 101.750 |
Sorpflutningur og sorphirða | 60.125 |
Sólbaðstofa | 64.750 |
Spennistöð | 30.063 |
Spilliefnamóttaka og flutningur spilliefna | 39.313 |
Steinsmíði | 55.500 |
Steinsmíði minni hátta | 27.750 |
Sultu- og ávaxtagrautargerð | 111.500 |
Sumarbúðir | 55.500 |
Sund- og baðstaður | 428.000 |
Sund- og baðstaður, takamarkað umfang | 232.250 |
Súkkulaði- og sælgætisgerð | 120.500 |
Sölutjöld og sjálfsalar | 9.250 |
Tannlæknastofa | 50.875 |
Te- og kaffi pökkun | 32.375 |
Tjaldstæði, þ. á. m. hjólhýsastæði | 50.875 |
Tóbakssala – verslun | 55.500 |
Trésmiði-innréttingaverksmiðja | 55.500 |
Trésmiðja – án lökkunar eða lítið umfang | 27.750 |
Varaaflstöð með olíubirgðum<1600l | 32.375 |
Varaaflstöðvar með olíubirgðum >1600l | 64.750 |
Vatnsveita án vatnsbóls > 5.000 íbúar | 949.500 |
Vatnsveita án vatnsbóls 1.000 – 5.000 íbúar | 316.500 |
Vatnsveita og vatnsból 25.001 – 30.000 íbúar | 1.842.500 |
Vatnsveita og vatnsból 30.001 – 50.000 íbúar | 2.093.750 |
Vatnsveita og vatnsból, einka | 46.750 |
Vatnsveita og/eða vatnsból <1.000 íbúar | 83.750 |
Veisluþjónusta, greiðasala og sala á tilbúnum mat | 93.000 |
Veitingastaðir | 120.750 |
Veitingastofa s.s. ísbúð o.þ.h. | 93.000 |
Verslun, brauð og kökusala, veitingastofa | 83.750 |
Verslunarmiðstöð | 74.000 |
Vinnsla með plast- og frauðefni | 32.375 |
Vinnsla með trefjaplast | 101.750 |
Vistheimili | 37.000 |
Vöruafgreiðsla | 74.000 |
Vörugeymsla, dreifing efna í snertingu við matvæli | 27.750 |
Vöruhótel | 74.000 |
1. gr.
Af hundum í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi skal Heilbrigðiseftirlitið innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd heilbrigðissamþykktar um hundahald, sbr. 15. gr. samþykktar nr.154/2000 um hundahald í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ, sbr. 3 gr. samþykktar 332/1998 í Mosfellsbæ og sbr. 3 gr. samþykktar nr.579/2008 um hundahald í Seltjarnarneskaupstað.
2. gr.
Af skráðum hundum skal innheimta árlegt leyfisgjald sem hér segir fyrir allt árið eða hluta úr ári. Innifalið í leyfisgjaldi er ábyrgðartrygging, númeraplata og umsýslugjald heilbrigðiseftirlitsins.
Einn hundur kr. 15.000
Ekki er innheimt leyfisgjald á því ári sem hundur er skráður.
3. gr.
Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald sem hér segir:
Tvö tímagjöld heilbrigðiseftirlits kr. 37.000
Ekki er innheimt handsömunargjald af skráðum hundum.
Greiða skal þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
4. gr.
Gjalddagi samkvæmt 3. grein er 1. mars og eindagi 1. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
5. gr.
Hafi leyfishafi lokið námskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af heilbrigðiseftirlitinu, er heilbrigðisnefnd heimilt, að fenginni umsókn, að lækka gjöld skv. 3. grein gjaldskrár þessarar um allt að helming, frá þeim tíma sem fullnægjandi gögn voru lögð fram, enda mæli ekki önnur atriði á móti því sbr. samþykkt um hundahald nr. 154/2000. Skilyrt er að gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari séu ekki í vanskilum.
6. gr.
Heilbrigðisnefnd er heimilt að fella niður eða lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar af leiðsöguhundum blindra, leitar- eða björgunarhundum. Ber að sækja um slíka lækkun eða niðurfellingu gjalda sérstaklega til heilbrigðisnefndar.
7. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Garðabæjar 21. október 2021, bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar 12. janúar 2022, bæjarstjórn Kópavogsbæjar 14. desember 2021, bæjarstjórn Mosfellsbæjar 12. janúar 2022 og bæjarstjórn Seltjarnarness 20. janúar 2022, staðfestist hér með vísun til ákvæða 12. gr. og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þegar við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldsskrá nr.1370/2019 um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi, gjaldskrá nr.341/2019 fyrir hundahald á Seltjarnarnesi og gjaldskrá nr.1525/2020 fyrir hundahald í Mosfellsbæ.
Garðabæ 20. janúar 2022
f.h. heilbrigðisnefndar
Hörður Þorsteinsson
framkvæmdastjóri
1. gr.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar leggur á sérstakt sorphirðugjald.
2. gr.
Sorphirðugjald skal lagt á allar íbúðir sem virtar eru fasteignamati. Einnig skal sorphirðugjald lagt á aukaíbúðir í húsum sem virtar eru fasteignamati sem óskiptar eignir.
Sorphirðugjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu sorpeyðingu og urðun sorps ásamt kostnaðarhlutdeild við rekstur endurvinnslustöðva og grenndarstöðva.
Hægt er að óska eftir aukatunnu við hverja íbúð.
3. gr.
Sorphirðugjald vegna íbúðarhúsnæðis kr. 56.900 og eru gjalddagar þess hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.
Innifalið í því gjaldi er eitt grátt sorpílát fyrir óflokkað sorp auk blárrar endurvinnslutunnu fyrir pappír sem og sorphreinsun og sorpeyðing vegna þess.
Fyrir hvert aukasorpílát heimila er á sama hátt innheimt árlega, og fyrir fram, gjald eftir því sem hér segir:
- fyrir 240 l gráa tunnu kr. 56.900
- fyrir 240 l bláa tunnu kr. 56.900
- fyrir 660 l gám kr. 113.800
Heimili sem óska eftir aukasorpíláti skulu beina ósk þar að lútandi til þjónustuvers Mosfellsbæjar. Einnig er hægt að panta í gegnum ábendingakerfi bæjarins.
Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.
Sorphirðugjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár frá gjalddaga.
4. gr.
Þar sem sorphirða fer fram samkvæmt sérstakri þjónustubeiðni skal innheimta sorphirðugjalds vera samkvæmt reikningi, fyrir sannanlegum kostnaði.
Þar sem sorphirða er sérstaklega flókin og kostnaðarsöm skal heimilt að leggja á aukagjald fyrir sannanlegum kostnaði.
5. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 817. fundi, þann 7. desember 2022. með vísan til 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 og 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar.
Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um sama efni nr. 1725/2021.
Mosfellsbæ, 8. desember 2022.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
B deild – Útgáfud.: 10. janúar 2023
Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sjá 1. gr. – 2.500 kr.
Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota, sjá 2. gr. – 5.000 kr.
Stöðvunarbrotagjald vegna brots á reglum um notkun á merktu stæði fyrir bifreiðir fatlaðra, sjá 3 gr. – 10.000 kr.
Ath. að verð hækkar eftir 14 og 28 daga ef skuld er enn ógreidd, sbr. 6. gr.
Auglýsing um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Garðabæ, Sveitarfélaginu Álftanesi, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Seltjarnarneskaupstað og Mosfellsbæ.
1. gr.
Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sbr. 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. f-lið 1. mgr. 108. gr. sömu laga, skal vera 2.500 kr.
2. gr.
Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota sbr. a-e lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að undanskildum j-lið 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr., skal vera 5.000 kr.
3. gr.
Stöðvunarbrotagjald vegna brots á reglum um notkun á merktu stæði fyrir bifreiðir fatlaðra, sbr. lið 1. mgr. 28. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr. sömu laga, skal vera 10.000 kr.
4. gr.
Þegar gjald skv. 1., 2. og 3. gr. er greitt innan þriggja virkra daga frá álagningu þess er heimilt að veita 1.100 kr. staðgreiðsluafslátt. Afslátturinn er aðeins veittur þegar álagningarseðill er greiddur án fyrirvara eða andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan hins tilskilda frests.
5. gr.
Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.
6. gr.
Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til staðgreiðsluafsláttar og undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga.
7. gr.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, sbr. reglur um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1998, sbr. breytingu á reglunum nr. 226/2004. Gjaldskráin öðlast gildi 1. júní 2010.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 27. apríl 2010
Kristján L. Möller
Ragnhildur Hjaltadóttir
B-deild – Útgáfud.: 14. maí 2010
Velferðarmál
1. gr.
Fyrir akstursþjónustu eldri borgara á vegum Mosfellsbæjar skv. reglum þar um skal einstaklingur greiða 650 kr. fyrir hverja ferð. Fari ferðafjöldi yfir 16 ferðir á mánuði greiðast 1.300 kr. fyrir hverja ferð. Sé þörf fyrir fylgdarmann innheimtir akstursaðili sama gjald fyrir hann og þann sem þjónustunnar nýtur.
2. gr.
Gjaldskráin skal taka breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á neysluvísitölu.
Samþykkt á 661. fundi bæjarstjórnar 28. desember 2018.
Upphæð í gjaldskrá þessari gildir frá 1. janúar 2023.
1. gr.
Fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks á vegum Mosfellsbæjar skal greiða gjald sem nemur hálfu almennu fargjaldi Strætó bs., sem innheimt er af akstursaðila.
Fatlaðir nemendur í framhalds- eða háskóla eiga kost á nemakorti skv. gjaldskrá Strætó bs. Sótt er um nemakort hjá fjölskyldusviði Mosfellsbæjar.
2. gr.
Hafi notandi með sér farþega greiðir notandi sama gjald fyrir hann. Hafi notandi með sér aðstoðarmann sem talið er nauðsynlegt að ferðist með notanda greiðir notandi ekkert fyrir hann.
3. gr.
Reglur þessar eru settar skv. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Gjaldskrá þessi er sett skv. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og öðlast þegar gildi.
Upphæð í gjaldskrá þessari gildir frá 1. janúar 2022.
1. gr.
Gjald fyrir vistun í frístundaseli fer eftir fjölda skráðra klukkustunda. Gjald lækkar ekki þrátt fyrir skerta daga eða ef börn nýta ekki þjónustu s.s. vegna veikinda eða leyfis.
Hægt er að sækja um systkinaafslátt samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar þar um, inn á umsókn um frístundasel.
2. gr.
Grunngjald fyrir hverja klukkustund í frístundaseljum er 378 kr., lágmarksfjöldi vistunarstunda á viku eru 4 tímar.
Fyrir viðbótarvistun er greitt 3.218 kr. fyrir hvern dag.
3. gr.
Breytingaóskir þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar og taka gildi næstu mánaðarmót á eftir.
4. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 7. desember 2022.
Upphæðir í gjaldskrá þessari gilda frá 1. janúar 2023.
1. gr.
Í samræmi við reglugerð nr. 1216/2008 um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum, sem sett er með stoð í 19. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra með síðari breytingum, skulu þeir sem dagdvalar njóta í Mosfellsbæ greiða:
1.020 krónur á dag skv. 3. mgr. 1. gr. rlg. 1185/2014.
2. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt á 615. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 20. nóvember 2013.
Gjaldskráin tekur breytingum í samræmi við breytingu á reglugerð um daggjöld stofnana og gildir frá 1. janúar 2022.
1. gr.
Gjald vegna heimsendingar fæðis frá íbúða- og þjónustuhúsi að Hlaðhömrum á vegum Mosfellsbæjar er sem hér segir: Heimsending á fæði kr. 303.
2. gr.
Gjaldskrá þessi skal taka breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á neysluvísitölu.
3. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt á 594. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Upphæð í gjaldskrá þessari gildir frá 1. janúar 2023.
1. gr.
Mánaðarleg húsaleiga í félagslegum íbúðum á vegum Mosfellsbæjar er sem hér segir:
- Grunngjald: 47.000 kr.
- Fermetraverð: 1.160 kr./m2
- Bílakjallari: 2.000 kr.
- Íbúðir byggðar eftir 2005: 3.000 kr.
2. gr.
Húsaleiga skv. 1. gr. tekur mánaðarlegum breytingum samkvæmt breytingu á vísitölu neysluverðs.
3. gr.
Samþykkt á 778. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 10. mars 2021.
Upphæðir í gjaldskrá þessari gilda frá 1. október 2021.
1. gr.
Mánaðarleg húsaleiga í íbúðum aldraðra á vegum Mosfellsbæjar er sem hér segir:
Húsaleiga einstaklingsíbúða kr. 52.986
2. gr.
Húsaleiga sbr. 1. gr. tekur mánaðarlegum breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs.
3. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt á 571. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 21. desember 2011.
Gjaldskrá þessi gildir frá 1. janúar 2022.
1. gr.
Gjald vegna námskeiða í félagsstarfi aldraðra á vegum Mosfellsbæjar er sem hér segir: námskeiðsgjald á kennslustund er 322 kr.
2. gr.
Gjald vegna ljósritunar er 40 kr. á A4 og 80 kr. A3 á blað.
Gjaldskrá þessi skal taka breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á neysluvísitölu.
3. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt á 594. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 22. nóvember 2012 og gildir frá og með 1. janúar 2013.
Upphæð í gjaldskrá þessari gildir frá 1. janúar 2023.
1. gr.
Mosfellsbær greiðir stuðningsfjölskyldu barns þóknun fyrir hvern sólarhring sem barnið dvelur hjá fjölskyldunni. Greiðslur eru stigskiptar eftir umfangi fötlunar og/eða umönnunarþörf. Fyrir fötluð börn styðjast þær við umönnunarmat frá Tryggingastofnun ríkisins og þá flokkun sem fram kemur í reglugerð þar að lútandi.1
Fjárhæð greiðslna er sem hér segir:
- 1. fl.: Börn sem eru algerlega háð öðrum með athafnir daglegs lífs.
Greiddar eru kr. 42.689 fyrir hvern sólarhring. - 2. fl.: Börn sem þurfa verulega aðstoð við athafnir daglegs lífs og gæslu.
Greiddar eru kr. 33.035 fyrir hvern sólarhring. - 3. fl.: Börn sem þurfa minni aðstoð en skv. 1. og 2. fl. en þurfa eftirlit við athafnir daglegs lífs.
Greiddar eru kr. 27.977 fyrir hvern sólarhring.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna eru skattaskyldar verktakagreiðslur en draga má frá kostnað samkvæmt reglum Ríkisskattstjóra sem fjölskyldusvið Mosfellsbæjar vísar á.
2. gr.
Gjaldskrá þessi gildir frá og með 1. janúar 2023.
1Reglugerð nr. 504/1997, um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.
1. gr.
Fyrir stuðningsþjónustu á vegum Mosfellsbæjar skal greiða gjald, sem nemur 2.135 kr. á klukkustund. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiði gjald sem nemur 983 kr. á klukkustund.
Gjaldskráin skal taka breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á neysluvísitölu.
2. gr.
Undanþegnir gjaldskyldu vegna stuðningsþjónustu skulu þeir sem ekki hafa aðrar tekjur en ellilífeyri/örorkulífeyri og óskerta tekjutryggingu.
Lífeyrisþegar greiða aldrei hærra gjald fyrir félagslega heimaþjónustu en sem nemur 75% af tekjum umfram lífeyri, eins og hann er skilgreindur hér að framan.
3. gr.
Fjölskyldunefnd er heimilt að gefa eftir hluta greiðslu fyrir veitta stuðningsþjónustu eða fella greiðslu alveg niður. Skal þá tekið tillit til efnahags og annarra aðstæðna.
4. gr.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og gildir frá 1. janúar 2012.
Upphæðir í gjaldskrá þessari, sem er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar, gildir frá 1. janúar 2023.
1. gr.
Gjaldskrá þessi gildir vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna við börn sem unnið er með á grundvelli d. liðar 1. mgr. 24. gr. og 85. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 ásamt ákvæðum VI. kafla reglugerðar nr. 652/2004 um úrræði á ábyrgð sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga. Mosfellsbær greiðir stuðningsfjölskyldu þóknun fyrir hvern sólarhring sem barnið dvelur hjá fjölskyldunni.
Fjárhæð greiðslna er kr. 27.977 fyrir hvern sólarhring.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna eru skattaskyldar verktakagreiðslur en draga má frá kostnað samkvæmt reglum Ríkisskattstjóra sem velferðarsvið Mosfellsbæjar vísar á.
2. gr.
Upphæð í gjaldskrá þessari gildir frá og með 1. janúar 2023.
1. gr.
Leigjendur í leiguíbúðum aldraðra á vegum Mosfellsbæjar greiði mánaðarlega 5.277 kr. þjónustugjald sem mæti kostnaði við þrif á sameign, umhirðu lóðar, hita og rafmagns í sameign, hita í íbúð, öryggiskallkerfis og lyftu.
2. gr.
Gjaldskráin skal taka breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á neysluvísitölu.
3. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar 3. desember 2014, með heimild í 20. gr. nr 125/1999 um málefni aldraðra, og gildir frá og með 1. janúar 2015.
Upphæð í gjaldskrá þessari gildir frá 1. janúar 2023.