Skólakór Varmárskóla heldur vortónleika í sal Varmárskóla miðvikudaginn 23. maí kl. 18:00.
Um 70 – 80 börn og unglingar hafa tekið þátt í kórstarfinu í vetur sem hefur verið mjög blómlegt. Meðal annars kom kórinn fram í Hörpu ásamt Skólahljómsveit Mosfellsbæjar á haustmánuðum og kom 12 sinnum fram á aðventunni m.a. á tónleikum í Langholtskirkju með Gissuri Páli Gissurarsyni og Karlakórnum Stefni.
Á liðnum árum hefur kórinn víða komið fram bæði innan lands og utan, m.a. farið í söngferðir til Noregs, Frakklands, Danmerkur og Spánar.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og lífleg að vanda. Söngstjóri er Guðmundur Ómar Óskarsson.