Kvíslarskóli fagnaði 50 ára starfsafmæli í gær 8. maí og var húsfyllir þegar saman komu núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar ásamt öðrum íbúum til að taka þátt í hátíðarhöldunum, kynna sé starfsemina og skoða ný uppgerðan skólann.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar undir stjórn Sveins Birgissonar tók á móti gestum við aðalinngang og eftir það hófst stutt dagskrá á sal skólans. Þórhildur Elfarsdóttir skólastjóri bauð gesti velkomna og tónlistaratriði voru flutt af núverandi og fyrrverandi nemendum, þeim Steinunni Davíðsdóttur á selló, Írisi og Magnúsi Torfabörnum á fiðlu og að lokum lék Greta Salóme tvö lög á fiðlu. Lena Amirsdóttir nemandi við skólann og formaður nemendaráðs flutti ræðu og þá fluttu Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Aldís Stefánsdóttir formaður fræðslunefndar kveðju til skólans. Eftir dagskrá var opið hús og gengu gestir um skólann og fengu innlit inn í daglegt starf nemenda í Kvíslarskóla.
Skólahúsnæði Kvíslarskóla var byggt árið 1972 og flutti þá unglingadeildin úr Brúarlandi í nýtt húsnæði við Varmárhól. Í upphafi hét skólinn Gagnfræðaskóli Mosfellssveitar en árið 2001 voru Varmárskóli og Gaggó Mos sameinaðir undir nafni Varmárskóla. Árið 2021 voru skólarnir aðskildir á ný og fékk skólinn nafnið Kvíslarskóli með tilvitnun í Köldukvísl.
Vegna mikilla framkvæmda í húsinu árið 2022 var ákveðið að fresta hátíðarhöldum og halda upp á afmælið að framkvæmdum loknum nú að vori 2025.
Á efstu myndinni eru frá vinstri: Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Þórhildur Elfarsdóttir skólastjóri Kvíslarskóla, Aldís Stefánsdóttir formaður fræðslunefndar og Ólöf Kristín Sívertsen sviðsstjóri fræðslu og frístundarsviðs.
Myndir: Gunnar Freyr Steinsson