Skólahljómsveit Mosfellsbæjar heldur tónleika í Guðríðarkirkju í Grafarvogi mándudaginn 19. apríl n.k. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Fram koma allir hópar Skólahljómsveitarinnar samtals 100 hljóðfæraleikarar. Efnisskrá tónleikanna er bæði skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi fyrir hljóðfæraleikarana. Efnisskránni verður dreift inn á öll heimili í Mosfellsbæ í lok vikunnar.
Helgina 6. – 9. maí n.k. fara 49 hljóðfæraleikarar ásamt 6 manna fylgdarliði á landsmót SÍSL í Vestmannaeyjum. Fjöldi þátttakanda á landsmótið er kominn yfir 800 og er búist við skemmtilegu móti þar en Eyjamenn eru vanir að taka á móti stórum hópum af gestum.
Tengt efni
Líf og fjör á degi Listaskólans
Dagur Listaskólans 1. mars 2025
Listaskólanum færður nýr flygill að gjöf
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti Listaskólanum formlega nýjan flygil að gjöf frá Mosfellsbæ á fyrstu tónleikum hausttónleikadaga skólans sem fóru fram 15. – 17. október í félagsheimilinu Hlégarði.