Höfundar vinningstillögu um aðkomutákn að Mosfellsbæ eru þau Anna Björg Sigurðardóttir, arkitekt og Ari Þorleifsson, byggingafræðingur.
Höfundar vinningstillögu um aðkomutákn að Mosfellsbæ eru þau Anna Björg Sigurðardóttir, arkitekt og Ari Þorleifsson, byggingafræðingur.
Tillaga þeirra var afhjúpuð í Hlégarði þann 3. maí sl. en í umsögn dómnefndar segir m.a. um vinningstillöguna að hún sé:
- “Stílhrein og falleg tillaga sem sækir á óhlutbundinn hátt í náttúruna, ásamt því að sækja í rótgróið merki Mosfellsbæjar eftir Kristínu Þorkelsdóttur.”
- “Áhugaverður skúlptúr sem vísar til þriggja innkomuleiða Mosfellsbæjar, þá þrjá staði sem fyrirhugað er að staðsetja merkið, og gefur möguleika á fjölbreytilegum útfærslum.”
Þá veitti dómnefndin þremur tillögum viðurkenningu en þær tillögur komu frá eftirtöldum aðilum:
- Gunnari Kára Oddsyni og Oddi Þ. Hermannssyni, landslagsarkitektum
- Elísabetu Hugrúnu Georgsdóttur, arkitekt
- Kristjáni Frey Einarssyni, grafískum hönnuði og Halldóru Eldjárn
Næstu skref þessa verkefnis felast í vinnu Mosfellsbæjar með vinningshöfum við útfærslu hugmyndarinnar, eins og vinna við teikningar, undirbúningur framleiðslu aðkomutáknsins og vinna við að finna aðkomutákninu endanlega staðsetningu. Til stendur að vígja aðkomutáknið í ágúst nk.
Þær tillögur sem unnu til verðlauna verða til sýnis á bókasafni Mosfellsbæjar innan skamms.
Mosfellsbæ óskar vinningshöfum hjartanlega til hamingju og þakkar öllum fyrir þátttökuna.
Tengt efni
Skapandi umræður á opnum fundi um menningarmál
Um 60 manns tóku þátt í opnum fundi menningar- og lýðræðisnefndar um rými fyrir sköpun og miðlun menningar í Mosfellsbæ sem haldinn var í Hlégarði 28. nóvember.
Sköpum rými
Opinn fundur menningar- og lýðræðisnefndar um rými fyrir sköpun og miðlun menningar í Mosfellsbæ verður haldinn í Hlégarði þriðjudaginn 28. nóvember.
Fögnum fjölbreytileikanum - Regnbogagata máluð í Mosfellsbæ
Í dag, miðvikudaginn 9. ágúst, á 36 ára afmælisdegi Mosfellsbæjar, tóku bæjarstjóri og bæjarfulltrúar til hendinni og máluðu regnbogagötu fyrir framan félagsheimilið Hlégarð.