Bæjarstjórn Mosfellsbæjar ákvað á 30 ára afmæli bæjarins í fyrra að veita fjármagni í uppsetningu á leiktæki í ævintýragarðinum sem hluta af uppbyggingu á miðsvæði garðsins og leiksvæði því tengdu.
Kastalinn verður vígður laugardaginn 12.maí næstkomandi og að því tilefni verður efnt til vígsluhátíðar.
Dagskrá vígslunnar er eftirfarandi:
- Kl. 13:00 – Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri vígir kastalann
- Kl. 13:10 – Leikskólabörn frá Leikskólanum Reykjakoti syngja nokkur lög
- Kl. 13:20 – Boðið verður upp á kennslu í frisbígolf og í kjölfarið verður efnt til keppni í frisbígolfi
Boðið verður upp á grillaðar pylsur og drykki.
Þar sem kastalinn er staðsettur i miðjum Ævintýragarðinum er gestum bent á bílastæði við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
Tengt efni
Ærslabelgur í Ævintýragarðinum
Nýr ærslabelgur er kominn upp í Ævintýragarðinum.
Skemmdarverk í Ævintýragarðinum
Skemmdaverk voru unnin um helgina á nýjum ærslabelg Mosfellinga sem er staðsettur í Ævintýragarðinum.
Nýr ærslabelgur í Ævintýragarðinum
Nú er búið að setja upp nýjan ærslabelg í Ævintýrgarðinum í Ullarnesbrekkum.