Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
20. júní 2025

Á 1636. fundi bæj­ar­ráðs, dags. 29. ág­úst 2024, var sam­þykkt að aug­lýsa bygg­ing­ar­rétti sex­tán ein­býl­is­húsa­lóða við Úu­götu í Helga­fells­hverfi til út­hlut­un­ar. Til­boð í um­rædda bygg­ing­ar­rétti voru opn­uð á 1666. fundi bæj­ar­ráðs þann 30. apríl sl. Alls bár­ust 57 til­boð.

Á 1669. fundi sín­um þann 22. maí sl. sam­þykkti bæj­ar­ráð að taka til­boð­um þann­ig að hæsta boð í hverja lóð skyldi lagt til grund­vall­ar en þó með fyr­ir­vara um að til­boðs­gjaf­ar upp­fylltu öll skil­yrði út­hlut­un­ar­skil­mála, þ. á m. um hæfi. Jafn­framt var sam­þykkt að veita bæj­ar­stjóra um­boð til að sam­þykkja til­boð í lóð­ir í þeim til­vik­um sem til­boðs­gjaf­ar féllu frá til­boð­um sín­um eða upp­fylltu ekki hæfis­skil­yrði og skyldi þá taka til­boði að­ila sem næst­ir voru í röð­inni hvað til­boðsverð varð­ar.

Úr­vinnslu allra til­boða er lok­ið og hef­ur lóð­un­um ver­ið út­hlutað til eft­ir­far­andi að­ila:

  • Úugata 41 – Sól­hús ehf.
  • Úugata 47 – Sól­hús ehf.
  • Úugata 65 – Ótt­ar Hillers
  • Úugata 67 – Ósk­ar Örn Arn­ar­son
  • Úugata 73 – Hólm­fríð­ur Sig­urð­ar­dótt­ir
  • Úugata 80 – Bygg­ing­ar­fé­lag­ið Breki ehf.
  • Úugata 84 – JÞÞ ehf.
  • Úugata 88 – JÞÞ ehf.

Lóð­ir sem gengu ekki út eru Úugata 31, 33, 35, 37, 39, 43, 45 og 63.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00