Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
17. júní 2024

Í boði eru 50 lóð­ir við Úu­götu þar sem gert er ráð fyr­ir 30 ein­býl­is­hús­um, átta par­hús­um (16 íbúð­ir) og einu fjög­urra ein­inga rað­húsi.

Úugata er í suð­ur­hlíð­um Helga­fells og er eitt glæsi­leg­asta bygg­ing­ar­svæði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Lóð­irn­ar sitja hátt í land­inu og það­an er mik­ið út­sýni.

Í hverf­inu er lögð áhersla á fjöl­breytta byggð, vand­aða um­hverf­is­mót­un og góða teng­ingu við úti­vist­ar­svæði og ósnortna nátt­úru. Hverf­ið ligg­ur vel við meg­in um­ferð­ar­kerfi Mos­fells­bæj­ar og er skammt frá mið­bæn­um og allri þeirri þjón­ustu sem þar er í boði.

Til­boð í lóð­ir skulu berast Mos­fells­bæ fyr­ir mið­nætti þann 19. júní 2024 og verða ein­göngu mót­tekin með ra­f­ræn­um hætti í gegn­um þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00