Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Markmið deili­skipu­lags­ins er ann­ars veg­ar að skil­greina lóð fyr­ir nýj­an skóla fyr­ir elstu ár­ganga leik­skóla­stigs og yngstu­ár­ganga grunn­skóla, og hins­veg­ar að festa í skipu­lagi að­komu og bíla­stæði fyr­ir golf­völl­inn Hlíð­ar­völl.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar verk­efn­is­lýs­ingu skv. 40. gr. skipu­lagslaga fyr­ir gerð deili­skipu­lags fyr­ir svæði sunn­an og vest­an lóða við Þrast­ar­höfða að vænt­an­leg­um tengi­vegi um Blikastað­a­land skv. að­al­skipu­lagi. Markmið deili­skipu­lags­ins er ann­ars veg­ar að skil­greina lóð fyr­ir nýj­an skóla fyr­ir elstu ár­ganga leik­skóla­stigs og yngstu ár­ganga grunn­skóla, og hins­veg­ar að festa í skipu­lagi að­komu og bíla­stæði fyr­ir golf­völl­inn Hlíð­ar­völl.

Í verk­efn­is­lýs­ing­unni kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við deili­skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um.

At­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi skipu­lags­lýs­ing­una má skila til þjón­ustu­vers­ins eða und­ir­rit­aðs og er æski­legt að þær ber­ist fyr­ir 8. júní n.k.

26. maí 2015,

Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00