Þjónustustöð Mosfellsbæjar leitar að kraftmiklum og þjónustulunduðum verkefnastjóra til að sinna fjölbreyttum störfum með góðum hópi starfsfólks.
Verkefnastjóri véla og tækja ber ábyrgð á ökutækjum og vélum Þjónustustöðvar og sinnir vélavinnu sem krefst iðnmenntunar og meiraprófs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Vélamaður skal hafa iðnmenntun innan vélvirkjunar, bifvélavirkjunar eða öðru sem nýtist við viðgerðir á vélum og ökutækjum
- Farsæl reynsla af áþekkum störfum
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á forritum eftir því sem við á hverju sinni
- Góðir samskiptahæfileikar og skipulagshæfni
- Frumkvæði og jákvætt viðhorf
- Nákvæmni og samviskusemi
- Góð hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli, bæði á íslensku og ensku
- Hreint sakavottorð
- Meirapróf og vinnuvélaréttindi skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hefur eftirlit og umsjón með ökutækjum og vélum
- Hefur umsjón með löggiltum skoðunum á tækjum
- Sér um viðhald og viðgerðir á ökutækjum og vélum
- Sinnir eftirliti með færð og ástandi vega skv. áætlun
- Tekur bak- og útkallsvaktir skv. áætlun
- Sinnir snjómokstri og hálkuvörnum stíga
- Sinnir öðrum verkefnum Þjónustustöðvar eins og þarf
Umsóknarfrestur er til 19. mars 2025.