Á fundi bæjarráðs í gær var samþykkt að ráða Heimi Eyvindarson í stöðu skólastjóra Kvíslarskóla og hefur hann störf 1. ágúst næstkomandi. Átta umsóknir bárust um starfið og var hann valinn úr hópi góðra umsækjenda.
Heimir lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2010 og hefur síðan bætt við sig viðbótardiplómu á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu. Þá er hann að ljúka meistaranámi í stjórnun menntastofnana við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Heimir á að baki farsælan kennslu- og stjórnendaferil í grunnskóla, sem skólastjóri frá haustinu 2023 og sem deildarstjóri 2013-2023. Hann hefur sinnt kennslu frá árinu 2005, haldið utan um stoðþjónustu og átt frumkvæði að og verið virkur í alls kyns þróunarstarfi og nýjungum í skólastarfi. Hann hefur tekið virkan þátt í námsefnisgerð og m.a. samið efni fyrir tvo gagnvirka námsvefi í dönskukennslu á unglingastigi sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út. Heimir hefur til viðbótar unnið mikið að sköpun í skólastarfi og að ýmsum verkefnum er koma að tækni í námi og kennslu s.s. notkun gagnvirkra forrita í kennslu, kennsluumsjónarkerfum, komið að vefsíðugerð auk texta- og pistlaskrifa á fjölbreyttum vettvangi.
Heimur hefur jafnframt verið virkur í félagsstörfum og situr í stjórn Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands fyrir hönd Skólastjórafélags Íslands og í stjórn Félags dönskukennara á Íslandi. Hann er einnig matsmaður hjá Rannís vegna umsókna í Erasmus+, styrkjaáætlun Evrópusambandsins fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál.
Mosfellsbær fangar því að fá Heimi í okkar flotta faghóp hér í Mosfellsbæ og vitum að hann tekur við góðu búi í Kvíslarskóla.