Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. júní 2025

Bæj­ar­ráð hef­ur sam­þykkt að ráða Jónu Rún Gísla­dótt­ur í stöðu leik­skóla­stjóra leik­skól­ans Huldu­bergs og hef­ur hún störf 1. ág­úst næst­kom­andi. Þrjár um­sókn­ir bár­ust um starf­ið og var hún valin úr hópi góðra um­sækj­enda.

Jóna Rún út­skrif­að­ist sem leik­skóla­kenn­ari frá Há­skóla Ís­lands árið 2009 og var að ljúka meist­ara­gráðu í Stjórn­un mennta­stofn­ana frá sama skóla. Hún á að baki far­sæl­an kennslu- og stjórn­enda­fer­il í leik­skól­an­um Huldu­bergi, sem að­stoð­ar­skóla­stjóri frá 2022 og sem deild­ar­stjóri 2012-2022.

Hún hef­ur starfað sem leik­skóla­kenn­ari frá ár­inu 2010, hald­ið utan um og átt frum­kvæði að sér­kennslu, leitt og ver­ið virk í alls kyns fag­legu þró­un­ar­starfi og nýj­ung­um í leik­skólastarfi, m.a. í sam­starfi við Rann­Ung og Nor­dplus.

„Við erum af­skap­lega spennt að fá Jónu Rún í nýtt hlut­verk í glæsi­leg­um fag­hópi leik­skóla­stjóra hér í Mos­fells­bæ og vit­um að hún tek­ur við góðu búi í leik­skól­an­um Huldu­bergi.“ Ólöf Kristín Sívertsen sviðs­stjóri fræðslu- og frí­stund­ar­sviðs.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00