Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Fræðslu- og frí­stunda­svið Mos­fells­bæj­ar hélt á dög­un­um kveðju­hóf til heið­urs tveim­ur reynd­um skóla­stjór­um sem nú láta af störf­um eft­ir lang­an og far­sæl­an fer­il í þágu mennt­un­ar og vel­ferð­ar barna í bæn­um.

Þuríð­ur Stef­áns­dótt­ir, leik­skóla­stjóri á Huldu­bergi, hef­ur starfað sem leik­skóla­stjóri þar frá ár­inu 1999. Und­ir henn­ar stjórn hef­ur Huldu­berg vax­ið og dafn­að og hef­ur get­ið sér góðs orðs fyr­ir fag­legt starf og hlý­legt um­hverfi. Þuríð­ur hef­ur jafn­framt ver­ið virk­ur þátt­tak­andi í þró­un leik­skóla­mála í Mos­fells­bæ í gegn­um árin.

Þór­hild­ur Elfars­dótt­ir, skóla­stjóri Kvísl­ar­skóla, hóf störf sem að­stoð­ar­skóla­stjóri við Varmár­skóla árið 2001 og tók við sem skóla­stjóri árið 2007. Hún stýrði síð­an stofn­un Kvísl­ar­skóla árið 2021 þeg­ar Varmár­skóla var skipt í tvo skóla og hef­ur ver­ið leið­andi í upp­bygg­ingu hans með áherslu á skap­andi og fjöl­breytt skólast­arf og vel­ferð nem­enda.

Við þetta tæki­færi var þeim Þuríði og Þór­hildi þakkað inni­lega fyr­ir dýr­mætt fram­lag til skóla­mála í Mos­fells­bæ og þeim óskað velfarn­að­ar í kom­andi verk­efn­um.

Þór­hild­ur Elfars­dótt­ir, Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri og Þuríð­ur Stef­áns­dótt­ir.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00