Bókmenntahlaðborð Bókasafns Mosfellsbæjar, sem fór fram 21. nóvember sl., var að vanda vel sótt.
Hátt í 300 gestir mættu til að hlýða á rithöfunda lesa úr nýútkomnum bókum sínum.
Rithöfundar kvöldsins voru Auður Jónsdóttir með bók sína Tilfinningabyltingin, Pétur Gunnarsson með HKL – ástarsaga, Halldór Halldórsson (einnig þekktur sem Dóri DNA) með bók sína Kokkáll, Vigdís Grímsdóttir sem las úr bók sinni Systa: Bernskunnar vegna og Eva Björg Ægisdóttir með Stelpur sem ljúga.
Glaðlegur söngur Kvennakórsins Heklurnar hljómaði meðan gestir streymdu í hús og rithöfundurinn og Mosfellingurinn Björn Halldórsson stjórnaði líflegum umræðum að lestri loknum.
Gestir skemmtu sér vel og nutu góðra bókmennta og veitinga í notalegu umhverfi Bókasafnsins.
Tengt efni
Menning í mars í Kjarna laugardaginn 22. mars 2025
Blómlegir tímar í Kósí Kjarna
Menningin í Mosfellsbæ lyftir upp andanum í mars
Menning í mars hefur það að markmiði að efla menningarstarf í bænum, gera það sýnilegra og styðja þau sem að því standa við að kynna sig.