Mánudaginn 30. júní kl. 16:00 býðst íbúum Mosfellsbæjar og gestum þeirra að sjá sýningu barna og unglinga sirkussins Cirkus Flik Flak. Sýningin verður haldin í íþróttasal Lágafellslaugar. Athugið að gengið er inn í íþróttasalinn á hlið hússins nær Lágafellsskóla.
Sirkusinn kemur frá Danmörku og hefur reglulega haldið sýningar á Íslandi frá árinu 2002 og haft aðsetur í Lágafellsskóla á meðan hann dvelur á höfðuborgarsvæðinu.
Sýningar hópsins eru fyrir alla fjölskylduna en höfða sérstaklega til barna og unglinga.
Aðgangur er ókeypis, en til að ná upp í ferðakostnað selur hópurinn popkorn og candyfloss við innganginn.