Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
18. júní 2025

Mos­fell­ing­ar og gest­ir létu rign­ing­una ekki á sig fá og fjöl­menntu á 17. júní há­tíð­ar­höld bæj­ar­ins.

Há­tíð­ar­dag­skrá­in hófst með há­tíð­ar­guðs­þjón­ustu í Lága­fells­kirkju þar sem Heim­ir Hann­esson, sam­skipta­stjóri Þjóð­kirkj­unn­ar, pré­dik­aði. Skát­ar stóðu heið­ursvörð og tón­list­arstund und­ir styrkri stjórn Að­al­heið­ar Þor­steins­dótt­ur og kvart­etts henn­ar veitti at­höfn­inni há­tíð­leg­an blæ.

Skáta­fé­lag­ið Mosverj­ar leiddi skrúð­göngu frá Mið­bæj­ar­torgi að Hlé­garði, þar sem fjöl­breytt og líf­leg fjöl­skyldu­dagskrá tók við. Skóla­hljóm­sveit Mos­fells­bæj­ar á móti skrúð­göng­unni með lúðra­blæstri á Hlé­garðstúni.

Halla Karen Kristjáns­dótt­ir, formað­ur bæj­ar­ráðs, flutti há­tíð­ar­ræðu við upp­haf dag­skrár. Að því loknu steig fjall­kon­an á svið og flutti sitt ávarp, en fjall­kon­an að þessu sinni var Na­tal­ía Erla Arn­órs­dótt­ir. Na­tal­ía er bor­inn og barns­fædd­ur Mos­fell­ing­ur, er fé­lagi í Leik­fé­lagi Mos­fells­sveit­ar og stund­ar söngnám í söng­skóla Sig­urð­ar Demetz.

Gest­ir nutu þess að sjá Elsu úr Frozen stíga á svið og syngja, Leik­fé­lag Mos­fells­sveit­ar sýndi brot úr Galdra­karl­in­um í Oz og krakk­ar úr Danslist­ar­skóla JSB sýndu hæfi­leika sína. Þá létu álfarn­ir Þorri og Þura sjá sig, Leik­hóp­ur­inn Lotta vakti mikla lukku sem og Wally frá Sirkús Ís­lands sem sýndi list­ir sín­ar við mikla kátínu barna og for­eldra.

Sam­hliða dag­skránni bauð Aft­ur­eld­ing til glæsi­legs kaffi­hlað­borðs í Hlé­garði. Á Hlé­garðstún­inu voru hoppu­kastal­ar og fleira í boði fyr­ir börn.

Deg­in­um lauk með hinni sí­vin­sælu aflrauna­keppni á Hlé­garðstún­inu, þar sem keppt var um titl­ana Sterk­asti mað­ur Ís­lands (-90 kg og -105 kg) og Stál­kon­an 2025.

Þrátt fyr­ir rign­ing­una var sann­kölluð þjóð­há­tíð­ar­stemmn­ing í Mos­fells­bæ.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00